150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

aðgerðaáætlun í jarðamálum.

20. mál
[17:29]
Horfa

Anna Kolbrún Árnadóttir (M) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka kærlega fyrir þessi greinargóðu svör. Það er tvennt sem stendur út af, annars vegar punktur nr. 6. Þar er fjallað um lánasjóð vegna jarðakaupa og þá velti ég fyrir mér hvers konar lán yrði um að ræða og hver ætti að fá lánað. Eru einhver skilyrði sett þar um?

Hv. þm. Líneik Anna Sævarsdóttir hvatti atvinnuveganefnd til dáða, að það yrði unnið hratt og vel, og seinni punktur minn varðar það að ég hjó eftir því að nú á ekki að birta þessa áætlun fyrr en 2021 og mér finnst það býsna seint. Ég velti fyrir mér hvort við séum ekki að fara að bregðast við vandanum sem er núna, hvort þetta geti hreinlega beðið svona lengi, hvort það sé inni í myndinni að flýta því, breyta því þannig að jafnvel sé verið að tala um mál til framlagningar 2020.