150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

aðgerðaáætlun í jarðamálum.

20. mál
[17:31]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka flutningsmanni, Líneik Önnu Sævarsdóttur, fyrir að leggja þessa tillögu fram og tel um mjög mikilvægt málefni að ræða og afar brýnt að mörgu leyti. Margt af því sem þarna kemur fram er auðvitað ekki einhlítt og þarfnast íhugunar. Tilefnið er líklega stórtæk jarðakaup erlendra aðila hér á landi sem óþarft er að tíunda. En það sem ég ætlaði að spyrja um var í fyrsta lagi það sem hér kemur um þann vilja flutningsmanna að aðgerðaáætlunin hafi það markmið að tryggja eignarhald landsmanna á jörðum á Íslandi. Ég ætla í fyrsta lagi að spyrja aðeins um vilja flutningsmanns varðandi 40. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið þar sem bent er á að svo virðist vera sem hér á Íslandi sé gengið lengra en samningurinn segir til um í að opna heimildir til kaupa á landi. Ég spyr hvort það sé vilji flutningsmanna að þrengja þær heimildir.

Tillagan er vel unnin, hún er tæpar sex blaðsíður, en í beinu framhaldi vil ég einnig spyrja: Af hverju í ósköpunum — fyrst viljinn sem ég las hér upp kemur svona fram — koma ekki fram fullmótaðar tillögur um jarðakaup erlendra aðila? Ég skil þörfina á mörgum breytingum sem þarna kom fram. En af hverju leggja flutningsmenn ekki fram fullmótaðar tillögur varðandi það atriði sem virðist koma skýrt fram (Forseti hringir.) í tillögunni?