aðgerðaáætlun í jarðamálum.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er hissa á því hvað menn eru tvístígandi. Nú hefur þetta verið í umræðunni misserum og árum saman. Þetta er ekkert nýtt. Það er búið að margskoða þetta mál. Þessi greinargerð virðist vera mjög vel unnin, upp á sex blaðsíður. Af hverju koma þessar tillögur ekki fram núna? Eftir hverju eru menn að bíða? Eftir hverju er ríkisstjórnin að bíða? Þetta kemur frá þingmönnum Framsóknarflokksins. Það kemur fram í greinargerðinni að vinna hafi staðið yfir og að margsinnis hafi verið settir á starfshópar sem hafa unnið að þessu. Síðast í september 2018 skilaði starfshópur tillögum til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og verið er að vinna málið núna í forsætisráðuneytinu. Eftir hverju eru menn að bíða? Skarast sú vinna sem er í forsætisráðuneytinu og hefur verið unnin síðustu ár ekki við þessa tillögu? Getur flutningsmaður skýrt út fyrir mér hvernig það getur verið að það skarist ekki að þessi tillaga komi fram?