150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

aðgerðaáætlun í jarðamálum.

20. mál
[17:37]
Horfa

Flm. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu skarast þessi vinna og þessi vinna er í gangi. Þessi tillaga gengur einfaldlega út á það að draga fram að það þarf að fara í enn ítarlegri og viðameiri vinnu til að ná öllum markmiðunum sem þarf að ná. (KGH: Hvað ætlið þið að draga þetta lengi?) Þessi vinna er bara í fullum gangi og mun koma fyrr en síðar til þingsins. Það er mjög mikilvægt að hefja þessa umfjöllun um fyrstu aðgerðina og sú umfjöllun skilar síðan tillögu um lagabreytingar frá helstu lögfræðingum landsins.