150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

aðgerðaáætlun í jarðamálum.

20. mál
[17:38]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka flutningsmanni fyrir framsöguna. Nú fer ekki á milli mála, þegar maður les tillöguna, að helsti tilgangur hennar er að koma með einhverjum hætti í veg fyrir að útlendingar geti eignast land á Íslandi. Það kemur fram í inngangi að tryggja eigi eignarhald landsmanna og síðan að lögfestar reglur um skilgreind tengsl við Ísland séu forsenda fyrir eignarhaldi.

Alltaf þegar verið er að setja lög og reglur er gott að spyrja sig: Hver er nauðsynin? Hvað er það sem knýr á um breytinguna? Þá langar mig til að spyrja hv. flutningsmann: Hvaða gögn liggja að baki? Hvaða vandi er aðsteðjandi eða yfirvofandi? Hafa útlendingar eignast stóran hluta af jörðum? Stefnir í það? Bendir eitthvað til þess að með eignarhald útlendinga sé farið með öðrum hætti en eignarhald Íslendinga? Það væri ágætt að fá þetta upplýst.

Er ekki skynsamlegra, ef þörf er á að tryggja að farið sé með land með tilteknum hætti, að gera það með almennum reglum sem beinast þá að öllum sem hafa hug á að eignast land og fara með eignarheimildir frekar en að setja þetta í þennan (Forseti hringir.) búning? Spurningin er líka þessi: Hafa flutningsmenn íhugað þær neikvæðu afleiðingar sem þetta getur haft á jarðaverð á Íslandi?