150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

aðgerðaáætlun í jarðamálum.

20. mál
[17:43]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka svörin, sem mér fundust að vísu vera frekar rýr. Ég áttaði mig ekki á því í svari hv. þingmanns hvaða vanda væri verið að leysa eða hvað væri svona brýnt og aðkallandi. Ég er alls ekkert á móti því að menn setji almennar reglur um það hvernig við viljum að landið okkar sé nýtt og hvernig farið sé með auðlindir og þess háttar. Ég átta mig samt ekki á því af hverju nauðsynlegt er að hafa það sem útgangspunkt að þetta séu útlendingar. Ég átta mig ekki á því. Þeir þurfa eins og allir aðrir að lúta landslögum.

Varðandi dönsku reglurnar sem er vitnað til, og fjallað um í sérstökum lagabálki um landbúnaðareignir eða bújarðir í Danmörku, er t.d. gert ráð fyrir að eigandinn þurfi ekki að vera búsettur á jörðinni. Hann getur haft leiguliða á jörðinni. Það er gert til að tryggja að þar fari fram einhver tiltekin starfsemi. Gildir þetta ekki alveg jafnt um Íslendinga? Ég bara átta mig (Forseti hringir.) ekki á upplegginu. Af hverju er þetta einhvern veginn rauði þráðurinn og aðalatriðið í málinu en ekki landnýtingin og meðferð landsins? Það er það sem ég skil ekki.