150. löggjafarþing — 8. fundur,  23. sept. 2019.

stofnun embættis tæknistjóra ríkisins.

15. mál
[19:35]
Horfa

Flm. (Smári McCarthy) (P) (andsvar):

Herra forseti. Andsvarahringurinn snerist kannski svolítið við. En það er kannski bara ágætt úr því að hv. þingmaður nefnir þetta sérstaka verkefni, að taka saman gögn sem hafa verið búin til. Á sínum tíma voru verkefni hjá Þjóðskjalasafni Íslands þegar ég vann þar um stutta hríð m.a. að gera stafræna dómabók Skagafjarðarsýslu frá 1630 eða þar um bil, koma henni í rafrænt form og koma út á netið fyrstu manntölunum frá 1703, 1835 og 1845, ef mig misminnir ekki. Þetta eru dæmi um gögn sem koma samfélaginu mjög mikið við. Þetta er nokkuð sem margir gætu haft áhuga á að leita í og fræðast um hvernig hlutirnir voru áður fyrr og hvernig samfélagið hefur þróast. Við verðum að muna að íslenskt samfélag hefur verið til í vel rúmlega 1000 ár og mikið af upplýsingunum sem urðu til snemma á tíma þessarar þjóðar eru farnar, hafa týnst, munu aldrei koma aftur. Þetta snýst kannski ekki bara um að varðveita söguna heldur líka að varðveita framtíðina vegna þess að ef við sinnum ekki nógu góðu utanumhaldi um upplýsingastreymi okkar núna getur verið að fólk á næstu öld muni hreinlega ekki skilja hvað við vorum að gera hérna á þessum tíma.