störf þingsins.
Virðulegur forseti. Það er furðulegt til þess að hugsa að enn árið 2019 séu uppi efasemdir um þá náttúruvá sem stafar af loftslagsbreytingum af mannavöldum. Sem betur fer er stærstur hluti þingheims sannfærður um þessa staðreynd og staðráðinn í að gera það sem í okkar valdi stendur til þess að hemja þessa vá, enda mjög brýnt að bregðast við þeirri umhverfisógn með áhrifaríkum hætti. Bæði þurfum við að draga úr útblæstri og binda kolefni en við þurfum líka að búa okkur undir þær breytingar sem eru óhjákvæmilegar.
Ríkisstjórnin hefur sett metnaðarfull markmið og fylgir þeim eftir með raunhæfum verkefnum. Markmiðin byggjast á Parísarsáttmálanum en ná lengra. Það er ekkert óeðlilegt við það að við rökræðum vægi mismunandi aðgerða en rökræður um hvort aðgerða sé þörf tilheyra fortíðinni. Við eigum að rýna til gagns lausnir og forgangsröðun verkefna. Við eigum ekki að ala á ótta og sá efasemdum um mikilvægi verkefnisins. Gagnrýnin á ekki að verða þess valdandi að við gerum ekki neitt vegna þess að ekki sé hægt að sanna með óyggjandi hætti hvað viðkomandi aðgerð leggur af mörkum. Við þurfum einfaldlega að beita mörgum mismunandi aðgerðum. Til að ná markmiðunum þarf samstillt átak ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja, samtaka og einstaklinga og að því er unnið. Enginn getur gert allt en öll getum við gert eitthvað.
Þrátt fyrir ógnina er ekki þörf á heimsendaspá. Þær hafa verið nokkrar í gegnum mannkynssöguna en hér erum við enn.
Nýtum vísindin og þekkingu dagsins í dag, sem aldrei hefur verið meiri, til góðra verka. Hugvit mannsins á sér engin takmörk, virkjum það hugvit umhverfinu og samfélaginu til góða. Stjórnvöldum ber að styðja við rannsóknir, nýsköpun og tækniyfirfærslu á sviði umhverfismála. Nýtum þann vettvang, finnum nýjar lausnir til að takast á við breytta tíma með sjálfbærni að leiðarljósi.