störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ég ætla að gera að umræðuefni mínu verndun gamalla skipa og báta. Það er ótrúlegt til þess að vita að okkur hefur ekki tekist að móta stefnu eða framfylgja því að myndarlega sé staðið að verndun gamalla skipa og báta. Þó hafa verið gerðar til þess tilraunir sem hafa ekki gengið nógu vel eftir. Ég minnist þess að árið 2000 var samþykkt og afgreidd þingsályktun frá Alþingi, frá sjávarútvegsnefnd þeirra tíma, og hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa tillögur um hvernig skuli staðið að varðveislu gamalla skipa og báta sem eru mikilsverðar minjar um atvinnu og byggðasögu. Í því sambandi verði mótaðar reglur um fjármögnun, …“ o.s.frv. En ekkert varð af þeirri þingsályktun. Árið 2012 var samþykkt tillaga sama efnis, sem fór til nefndar þar sem hana dagaði uppi, en aðalástæða þess var að í lögum um menningarminjar á að vera tryggt að unnið verði að varðveislu skipa og báta en lítið hefur orðið ágengt í þeim efnum. Eins er í lögunum talað um að skip sem eru smíðuð fyrir 1950 ætti að vernda, en það ætti frekar að vera skip 50 ára og eldri.
Hæstv. forseti. Við þurfum að ganga í þessa vinnu og ég er með í undirbúningi þingsályktunartillögu þess efnis og verður spennandi og gaman að sjá hvernig þingheimur tekur undir þá vinnu.