150. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2019.

störf þingsins.

[13:47]
Horfa

Lilja Rafney Magnúsdóttir (Vg):

Virðulegur forseti. Atvinnuveganefnd hefur verið að kynna sér stöðu ferðamála og fengið á sinn fund framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar og ferðamálastjóra. Í morgun heimsóttum við höfuðstöðvar Íslandsstofu og kynntum okkur hvaða verkefni eru á þeirra borði við markaðssetningu Íslands á erlendum vettvangi og í fjárfestingum á útflutningi og skapandi greinum. Það er mikill sóknarhugur í ferðaþjónustunni. Þó að bakslag hafi orðið við fall WOW air virðist greinin aftur vera að rétta úr kútnum og þó að sætaframboðið hafi breyst virðist flugframboð vera að ná jafnvægi að nýju.

Landsbyggðin hefur verið að styrkja sig í ferðaþjónustu og Íslendingar ferðuðust meira innan lands í sumar en verið hefur. Það hefur verið aukning í hótelgistingu og dvalartími og neysla hvers ferðamanns hefur aukist. Þetta eru ánægjulegar fréttir þar sem útlitið var vissulega dökkt í vor hjá þessari stærstu gjaldeyrisskapandi grein landsins. Það má reikna með hóflegri fjölgun ferðamanna á næsta ári, 3–5%, sem er í sjálfu sér ekki slæmt þar sem við verðum að byggja upp innviði í takt við fjölgun ferðamanna og reka greinina á sjálfbæran hátt. Það reynir virkilega á þanþol náttúrunnar á vinsælustu áfangastöðunum þegar til landsins koma yfir 2 milljónir ferðamanna á ári og við verðum að móta stefnu sem tekur tillit til þolmarka náttúrunnar, jafnt til samfélagslegra þátta sem efnahagslegra þátta.

Það er ánægjulegt að sjá að hve heildstæðri stefnumótun Íslandsstofa er að vinna með fjölda aðila fyrir markaðssetningu okkar útflutningsgreina og markaðssetningu hér heima fyrir fyrir fjárfestingar á fjölbreyttum atvinnutækifærum eins og líftækniiðnaði, skapandi greinum, tæknifyrirtækjum og matvælaiðnaði svo að eitthvað sé nefnt. Allt þetta er með sjálfbærni að leiðarljósi. Samstarfsvettvangur stjórnvalda og atvinnulífsins um loftslagsmál og grænar lausnir skiptir þróun og tækifæri í fjölbreyttri atvinnuuppbyggingu miklu máli og það skiptir máli að stefna að sameiginlegu markmiði, sjálfbærri nýtingu.