150. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2019.

störf þingsins.

[13:49]
Horfa

Þorsteinn B Sæmundsson (M):

Virðulegur forseti. Lögreglan er ein af grunnstoðum þjóðfélagsins og það skiptir öllu máli að um lögregluna sem stofnun og störf hennar ríki traust og trúnaður en því er ekki að heilsa þessa dagana og vikurnar. Átta af níu lögreglustjórum á landinu, auk stjórnar Landssambands lögreglumanna, hafa lýst því yfir að þeir treysti ekki ríkislögreglustjóra. Þessi staða er óþolandi og við henni þarf að bregðast núna, ekki eftir nokkrar vikur. Sú staða sem nú er uppi verður ekki leyst með svokölluðum skipulagsbreytingum. Það er líkt því að reyna að setja plástur á svöðusár.

Það sem þarf að gera núna og gerast er að ríkislögreglustjóri víki frá störfum nú þegar til að skapa traust um starfsemi lögreglunnar á nýjan hátt. Ef nýskipaður dómsmálaráðherra bregst ekki við með því að vinna akkúrat að því bregst hún á fyrsta prófi sem fyrir hana er lagt sem ráðherra.

Ég trúi því að hæstv. dómsmálaráðherra muni taka á þessu máli af myndugleik og sjá til þess að ríkislögreglustjóri víki úr starfi þannig að traust geti aftur skapast um störf lögreglunnar. Það má ekki bíða, herra forseti, það þarf að gerast núna.