150. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2019.

réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.

129. mál
[15:53]
Horfa

Flm. (Þorsteinn B Sæmundsson) (M):

Herra forseti. Ég flyt hér í þriðja sinn framsögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum, um hækkun starfslokaaldurs. Flutningsmenn ásamt mér eru hv. þingmenn Anna Kolbrún Árnadóttir, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson og liðsauki þar sem er hv. 5. þm. Suðurk., Ari Trausti Guðmundsson. Þetta er í sjálfu sér mjög einfalt frumvarp, þetta eru þrjár greinar. Í 1. gr. segir, með leyfi forseta:

„Eftirfarandi breytingar verða á 33. gr. laganna:

a. Í stað orðanna „70 ára aldri“ í 1. mgr. kemur: 73 ára aldri.

b. Í stað orðanna „70 ára að aldri“ í 2. mgr. kemur: 73 ára aldri.“

Í 2. gr. segir:

„Í stað orðanna „70 ára aldri“ í 2. mgr. 43. gr. laganna kemur: 73 ára aldri.“

Í 3. gr. segir:

„Lög þessi öðlast þegar gildi.“

Herra forseti. Nú um nokkurt skeið höfum við haft hér á Íslandi nokkuð sem kallað er sveigjanleg starfslok, þ.e. að lífeyristökualdur geti verið allt frá 65 ára aldri og upp í áttrætt. En einn hópur fellur ekki undir þessa skilgreiningu og það eru ríkisstarfsmenn. Þeim ber samkvæmt lögum nr. 70/1996 að láta af störfum í næsta mánuði eftir að þeir verða sjötugir og skiptir þá engu við hvað þeir starfa. Að vísu eru undantekningar á þessu, líklega tvær, en það eru lögreglumenn og tollverðir sem láta af störfum 65 ára samkvæmt kjarasamningum. Í sjálfu sér eru sveigjanleg starfslok, eins og þarna er á minnst, lítils virði ef ekki er hægt að fara eftir því eða njóta þeirra réttinda sem í því felast.

Í þau fyrri tvö skipti sem þetta mál hefur verið flutt á þinginu hefur í sjálfu sér ekki verið mikill ágreiningur um málið en einhverra hluta vegna hefur það ekki náð fram að ganga. Fram hefur komið í samþykktum eða yfirlýsingum frá t.d. Félagi eldri borgara að það er mjög fylgjandi því að eldra fólk fái að vinna lengur en til sjötugs. Ég held að sá ágæti formaður þeirra samtaka, landssambandsins, hafi sagt í ræðu að fólk fari ekki fram yfir síðasta söludag þó að ákveðinni aldurstölu sé náð.

Þetta er hverju orði sannara, frú forseti. Í fyrsta lagi erum við Íslendingar að eldast að meðaltali og við erum sem betur fer yfir höfuð sprækari fram eftir aldri. Ég er nú orðinn svo gamall að ég man þá tíð að fólk sem var um sjötugt var gjörsamlega útkeyrt af vinnu og fór þá gjarnan beint inn á elliheimili. Þeir tímar eru liðnir sem betur fer og nú er það þannig að menn og konur eru sprækari lengra fram eftir aldri en áður var. Þess vegna var þetta frumvarp í sjálfu sér sett fram.

Það að geta unnið lengur snertir marga fleti. Í fyrsta lagi er það hið augljósa, að vinna sér inn tekjur lengur fram eftir aldri. Í öðru lagi að losna við þá einangrun sem óneitanlega skapast þegar fólk lætur af störfum. Þannig snertir þetta mál t.d. mál sem hér var flutt, ef ég man rétt, í gær, ágætt þingmál hv. þm. Ágústs Ólafs Ágústssonar um að sporna gegn þunglyndi eldri borgara. Það að geta unnið lengur en til sjötugs dregur úr þeirri einangrun sem ég minntist á áðan og er þannig liður í því að fólki líði betur, að það sé í meiri tengslum við aðra, sé virkir þátttakendur í þjóðfélaginu, einangrist ekki og verði síður fórnarlömb þunglyndis.

Það er líka annað sem hvetur til þess að þetta frumvarp verði samþykkt. Ríkisstarfsmenn, bæði almennir ríkisstarfsmenn og embættismenn, búa oft og tíðum yfir þekkingu sem þeir hafa áunnið sér og reynslu yfir langan tíma. Það er raunverulega óskynsamlegt að kasta þeirri þekkingu og reynslu á glæ með því „að reka þetta fólk heim sjötugt að aldri“. Dæmin sem maður þekkir eru þannig að sumir ríkisstarfsmenn sem láta af störfum sjötugir gerast verktakar hjá vinnuveitanda sínum. Hvað þýðir það? Það rekst aftur á móti á annað þingmál sem við Miðflokksfólk höfum flutt áður og munum flytja aftur, t.d. nú við 2. umr. fjárlaga, þ.e. að lífeyristekjur skerðist ekki, að atvinnutekjur skerði ekki lífeyristekjur. Þetta hangir saman, það mál og þetta mál. Þau dæmi þekkjast að fólk sem vinnur til sjötugs hjá ríkinu er gert að verktökum og þá má það vinna sér inn heilar 100.000 kr. sem verktakar áður en lífeyristekjur þess fara að skerðast. Þetta er í sjálfu sér dónaskapur. Ríkið og ríkiskassinn tapar ekki krónu á því að breyta þessu til þess horfs sem við Miðflokksfólk höfum barist fyrir og borið fram vegna þess að menn borga skatta af þeim tekjum sem þeir ná sér í. Ég ætla ekki að fara með enska málið af því að þingmálið er íslenska en þetta er tvöfaldur ávinningur, þess sem vinnur sér inn tekjurnar og ríkisins sem fær skatttekjur af þeim tekjum.

Ég get því ekki lagt nógu mikla áherslu á að þetta mál er jákvætt á marga lund. Það gerir fólki kleift að vinna sér inn tekjur lengra fram á ævina. Það kemur í veg fyrir einangrun og hugsanlega sjúkdóma sem menn verða fyrir þegar þeir hætta að vinna og setjast í helgan stein. Það framlengir þann tíma sem menn eru skattgreiðendur, og talar nú gamall innheimtumaður ríkissjóðs, og að sjálfsögðu það sem ekki er síst; þessi þekking og reynsla sem ég minntist á áðan. Ég þekki þess dæmi að menn, t.d. í náttúruvísindum, sem búa yfir gríðarlegri þekkingu sem þeir hafa aflað sér á löngum tíma — hafa kannski stundað rannsóknir á afmörkuðum sviðum, fuglarannsóknir, rannsóknir á gróðri — halda áfram að vinna, mæta jafnvel kauplaust í vinnuna, þegar þeir eru orðnir aldraðir til þess að geta fylgt rannsóknum sínum eftir. Þá segi ég aftur: Það er dónaskapur við fólk sem býr yfir þekkingu eins og þessari að ætla að senda það heim sjötugt eða gera það að verktökum og kroppa svo af því hverja krónu sem það vinnur sér inn umfram 100.000 kr. Það er dónaskapur gagnvart þessari kynslóð.

Það er annað líka: Við Íslendingar höfum ekki efni á því að fara á mis við þá þekkingu og reynslu sem þetta fólk býr yfir. Þess vegna held ég því fram að þetta mál sé þess eðlis að það ætti í sjálfu sér að eiga greiða leið í gegnum þingið, en tvisvar áður hef ég haldið að svo myndi gerast en ekki varð úr. En það er líka sagt að allt sé þegar þrennt er, frú forseti. Og ég trúi því auðvitað að nú sé komið að því að málið fari í gegn og verði afgreitt.

Í fyrra, þegar þetta frumvarp var flutt, heyrði ég ávæning af því utan af mér, úr nefndinni sem væntanlega fær málið til meðferðar, þ.e. efnahags- og viðskiptanefnd, að menn hefðu haft áhyggjur af því að nú væru kjarasamningar opinberra starfsmanna lausir o.s.frv. Það vill nú þannig til að ég hef átt viðtöl við forystumenn launþegasamtaka, þ.e. BHM, og ég hef ekki heyrt á þeim neina andstöðu við að málið gangi fram, alls ekki. Menn hafa líka verið eitthvað stressaðir yfir því að nú standi yfir kjarasamningar við þessa hópa. Ég sé ekki alveg hvernig þetta á að trufla það. Ég hef líka heyrt þá mótbáru að þetta atriði, þ.e. um aldurinn í þessum lögum, ætti að fara inn í kjarasamninga. Ég tel reyndar ekki að svo eigi að vera, þetta er búið að vera í þessum lögum síðan 1996 sem þá voru endurskoðuð. Þá breyttist skipunartími embættismanna, menn voru æviráðnir fram að þeim tíma en eru nú skipaðir til fimm ára í senn. Ég vil benda á eitt í viðbót sem hefur kannski ekki verið mótbára heldur athugasemd við frumvarpið. Menn hafa sagt: Af hverju 73 ár? Af hverju ekki 75 ár eða bara engin aldurstakmörk? Því er til að svara að samkvæmt rannsóknum sem ég hef séð og hagtölum eru menn mjög virkir atvinnuþátttakendur fram yfir 73 ára aldurinn. Þá virðist koma einhver brekka. Auðvitað gæti þessi tala verið 75 ár, en flutningsmönnum þótti þetta gott skref að stíga, 73 ár, og ef það reynist vel að hækka það í 75 ár.

Ef við ætlum hins vegar að hafa þetta ótakmarkað hlytum við að verða að setja inn hæfniskröfur. Þegar fólk er komið á þennan aldur fær það t.d. ekki bílpróf nema til einhvers ákveðins tíma og þarf þá að undirgangast endurnýjun ökuskírteina o.s.frv. Ef við værum með þennan tíma frjálsan þannig að menn gætu verið að til 80–85 ára aldurs, ef þeim endist þrek og heilsa, hlytum við að þurfa að setja inn einhver slík hæfnisskilyrði til að ganga úr skugga um að menn væru virkilega hæfir til að sinna störfum; öldrun leikur menn misjafnlega. Sú er alla vega persónuleg skoðun þess sem hér stendur, en vera kann að hún eigi ekki hljómgrunn meðal meðflutningsmanna. En ég tel að það myndi kalla á slíkt mat. Þess vegna held ég að það skref, að hafa þetta 73 ár, sé skynsamlegt og að það raski ekki neinu.

Ég hef reyndar ekki enn látið gera athugun á því hvernig aldursskipting opinberra starfsmanna er. Ég myndi ætla að þessi breyting, frá 70 árum upp í 73 ár, gæti hugsanlega snert 3–4 þúsund manna hóp. Ég hygg að það sé ekki meira. Ef ég man rétt eru ríkisstarfsmenn á Íslandi, í opinbera geiranum, þ.e. hjá ríki og sveitarfélögum, í kringum 23–24 þúsund, ef ég man rétt, þetta er sagt án ábyrgðar. En ég held að þetta myndi ekki raska neinu. Það verður líka að koma fram í þessari ræðu að þessi ákvörðun, að vinna til 73 ára, er valkvæð; það segir ekki „eigi“ í frumvarpstextanum heldur „megi“. Það skiptir verulegu máli og þarna erum við aftur farin að styðja við þessi sveigjanlegu starfslok. Sú skoðun hefur líka komið fram, og lögin heimila það algjörlega, að á einhverjum tímapunkti, t.d. um sjötugt, væri hægt fyrir fólk að halda áfram í hálfu starfi og byrja töku hálfs lífeyris. Þetta er fullkomlega fyrir hendi. Með því móti gætu menn tekið starfslok sín í mjúkri lendingu, ef ég get orðað það þannig

Á sínum tíma, þegar Finnar gengu í gegnum efnahagsleg harðindi í kjölfarið á hruni Sovétríkjanna, lögðu þeir mikla áherslu á að fá ungt fólk til starfa og settu menn á eftirlaun yngri en áður hafði verið. Það var ekki gert í einni handarvendingu heldur var það gert þannig að þeir sem voru að láta af störfum voru tiltækir. Þeir mættu annan hvern mánuð í eitt til tvö ár, líka til að koma í veg fyrir spekileka, til að koma í veg fyrir að þekkingin sem þeir sem voru að fara á eftirlaun bjuggu yfir læki út. Það er nú önnur saga. Þetta er álit okkar sem flytjum þetta mál.

Í fyrra fengum við þingmenn líka tölvuskeyti frá fólki sem var mjög ósátt við að þurfa að hætta í fullu fjöri, eins og það sagði sjálft, með hausinn stútfullan af þekkingu. Mjög nýlega heyrði ég útvarpsviðtal við ágætan skordýrafræðing sem hefur verið tíður gestur í útvarpi til að skýra út fyrir okkur landsmönnum hvað beri að varast á öllum árstíðum hvað skordýr varðar, lúsmý og allt það. Þessi ágæti maður er nú að komast á eftirlaun, og var ekki sáttur, skiljanlega. Við sem höfum notið þekkingar hans og þjónustu í öll þessi ár ættum líka að vera ósátt við að maður eins og hann, þessi ágæti einstaklingur sem þarna um ræðir, skuli neyddur til að hætta vinnu, láta af störfum sjötugur þegar hann er í fullu fjöri og með hausinn stútfullan af þekkingu og alla þessa reynslu. Þetta er sóun, frú forseti. Við megum ekki við því.

Að þessu sögðu vænti ég þess að frumvarpið fari, að lokinni umræðu í dag, til hv. efnahags- og viðskiptanefndar. Í þetta sinn vona ég að fulltrúar allra flokka í efnahags- og viðskiptanefnd taki undir það að málið verði afgreitt alla leið og að það geti öðlast gildi strax. Ég tel að það væri vel ráðið og biðla til þingmanna að það verði gert á þann veg að við getum afgreitt málið fljótt og örugglega í gegnum nefndina, fengið það aftur inn til 2. umr. og gert frumvarpið að lögum hið allra fyrsta.