árangurstenging kolefnisgjalds.
Virðulegur forseti. Tillagan snýst um heildarárangurinn, að allir vinni að þessu saman. Ef einum tekst vel til en engum öðrum gengur okkur verr en áætlanir gera ráð fyrir og þá hækkar kolefnisgjaldið. Þetta snýst dálítið um að við tökum öll ábyrgðina, leggjum hana ekki bara á herðar sumra því að við berum öll ábyrgð. Að sveifla til kolefnisgjaldinu sérstaklega eftir bensínverði? Ég veit ekki hvort það sé endilega skilvirkt. Það er hugmynd. Mér finnst það dálítið mikið inngrip, að stýra akkúrat bensínverðinu sem slíku. Yfir heildina ættu áhrifin að jafnaði yfir árið að vera þau sömu. Maður hefði ekki það mikla neyslustýringu að akkúrat þegar verðið er lágt stykki fólk til og keypti bensínbíla. Menn horfi frekar á langtímanotkunina, langtímahugsun ráði því hvort maður velji jarðefnaeldsneytisbíl, frekar en að fara eftir sveiflum á eldsneytisverði. Ég hef ekki það mikla trú á eldsneytisverðinu á Íslandi að verð á kolefnisjöfnun breyti nokkru. Ef eitthvað er er það bara verðbólguhvetjandi, sem er ekkert rosalega skemmtilegt og færir okkur yfir í annað vandamál. En ég væri alveg til í að sjá t.d. bensíngjaldið sem slíkt falla niður og hækka kolefnisgjaldið á móti, að vísu kæmi kílómetragjald á móti, (Forseti hringir.) og fleira á þeim nótum.