ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi.
Herra forseti. Mig langar að grípa tækifærið og fara í örstutt andsvar við ágæta framsöguræðu hv. þingmanns. Mér finnst þetta að mörgu leyti mjög athyglisvert mál en það sem hvatti mig til að koma hingað upp voru orð hennar um að það hefði verið blekkt til notkunar á pálmaolíu til eldsneytis. Það er eiginlega sá þráður sem mig langar að spinna í stuttu andsvari við hv. þingmann því að eitt af vandamálum umræðunnar um loftslagsmál eru alls konar rangar upplýsingar sem eru á kreiki.
Spurning mín til hv. þingmanns sem þessu tengist er að ég held að í meðferð á því þingmáli sem hún mælti fyrir sé ástæða fyrir hv. atvinnuveganefnd til að fjalla eilítið um það hvernig við getum komið þessu í betra horf. Mig langar að koma með tvo punkta. Hér var flutt athyglisvert mál um ræktun orkujurta í dag og hv. þingmaður nefndi það í sinni framsögu líka. Eftir því sem ég kann það bindur sú ræktun meira en hún losar þannig að eftir stendur að 3 tonn af kolefni á hvern hektara hafa verið bundin umfram losunina þegar búið er að brenna því eldsneyti sem unnið er úr repjuolíu.
Ég hnaut um það í umræðum um loftslagsmál í dag að það að framleiða nautakjöt í Noregi losar samkvæmt norskum tölum um 17 kíló kolefnis en nautakjöt sem framleitt er með maísfóðrun losar fjórum sinnum meira.
Þetta eru bara tveir punktar og staðreyndir. Ég tek alveg undir með hv. þingmanni að það þarf að bæta verulega umræður um loftslagsmál og við þurfum að gera miklu betur í að koma meira skikki á straum mikilla upplýsinga í loftslagsumræðuna.