150. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2019.

ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi.

120. mál
[17:46]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Varðandi þingmálið sem hún flytur um þá hvata sem eru til notkunar á pálmaolíu, sem eru þá drifnir áfram af eftirspurn á neytendamarkaði, tek ég alveg undir að mér finnst eiginlega mjög alvarlegt mál hversu blint fólk er fyrir áhrifum sínum bara með daglegum innkaupum. Það er stöðugt að verða meiri vitund um þetta en eins og ég sagði í mínu fyrra andsvari finnst mér fólk vera svolítið afvegaleitt í umræðunni. Ég ætla ekki að fara út í umræðu um veganisma og slíkar stefnur og sjónarmið í þeim efnum en aðeins segja að það er t.d. pálmaolíufita sem er notuð — ég tala oft og mikið um landbúnað — í kjarnfóðurblöndur og ýmsan fóðurbæti. Ég tek undir með hv. þingmanni, við höfum nefnilega svo ofboðslega mikil tækifæri heima. Allt í einu opnaðist fyrir okkur að allar þessar auðnir sem höfum haft á Íslandi og séð stundum á góðviðrisdögum blása upp eru stórkostlegt tækifæri fyrir okkur. Ég ætla bara að segja það í þessum stól að mér finnst miður hvernig okkur hefur tekist að halda á málum fyrir Íslands hönd þegar maður er að vinna í loftslagsumræðu á alþjóðlegum vettvangi að geta ekki bent á og dregið fram hversu gríðarlega möguleika við höfum til að ráðast í aðgerðir í loftslagsmálum með uppgræðslu eða endurheimt lands til að búa til það sem einhver kallaði jafnvel lungu fyrir heiminn með því að efla hérna gróðurþekju. Þetta mál er eins og svo mörg önnur mjög gott innlegg í þá umræðu sem við værum að taka byggða á vísindum en ekki hindurvitnum.