150. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2019.

ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi.

120. mál
[17:49]
Horfa

Flm. (Albertína Friðbjörg Elíasdóttir) (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það var kannski ekki bein spurning í síðara andsvari hv. þingmanns en ég tek undir með honum að það er fagnaðarefni hversu mikil og upplýst umræðan er orðin um loftslagsmálin á þinginu þó að ég telji samt sem áður að hún megi vera enn meiri. Í því samhengi langar mig líka að nefna að ég held að við eigum að reyna að gera þetta allt. Við þurfum að gera miklu meira og það kom svo skýrt fram líka í ræðu Gretu Thunberg í gær um loftslagsmálin. Við berum gríðarlega mikla ábyrgð í þessum sal, a.m.k. hvað varðar Íslendinga og þá sem búa á Íslandi, en við berum líka ábyrgð gagnvart umheiminum og gagnvart samíbúum okkar á þessari jörð. Þess vegna er gríðarlega mikilvægt að við leggjum okkur öll fram og gerum enn betur í loftslagsmálum.

Ég fagna því að heyra skilaboðin frá hv. þm. Haraldi Benediktssyni hvað það varðar.