150. löggjafarþing — 9. fundur,  24. sept. 2019.

ráðstafanir til að draga úr notkun pálmaolíu á Íslandi.

120. mál
[17:50]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hv. þm. Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur fyrir að leggja fram þessa þingsályktunartillögu sem mér finnst góð og allrar athygli verð. Ég er kannski með svipaðar pælingar og hv. þingmaður sem kom hingað upp í andsvar, Haraldur Benediktsson. Ég held einmitt að það sé mjög mikilvægt að ræða þessi mál út frá öllum hliðum og ég verð að viðurkenna sjálf vankunnáttu mína: Ég taldi mig fylgjast ágætlega með en það er ekkert langt síðan ég komst að því að pálmaolía væri notuð í lífefnaeldsneyti. Ég ætla líka að hrósa hv. þingmanni fyrir mjög ítarlega og góða greinargerð með þessari þingsályktunartillögu þar sem farið er mjög vel yfir þetta mál. En það sýnir að stundum er hlaupið aðeins of hratt þegar lögð er áhersla á t.d. lífefnaeldsneyti eða blöndunina, sem ég held að sé í grunninn mjög góð, nema ef við erum að fást við hráefni eins og pálmaolíu sem nefnd er í þessu tilfelli og kannski skilar ekki sama árangri. Þess vegna er svolítið leiðinlegt að sjá hvað umheimurinn hefur brugðist seint við hvað þetta varðar. Þess vegna vil ég hvetja hv. atvinnuveganefnd áfram í því að fjalla um þetta mál og fá mismunandi sjónarhorn upp á borðið.

Svo langaði mig líka að nefna það, og ég vænti að geti líka komið til umræðu í atvinnuveganefnd, að fyrir okkur sem neytendur skortir oft svo mikið af upplýsingum. Sjálf hef ég reynt að forðast vörur með pálmaolíu í og það getur verið þrautin þyngri í ákveðnum fæðuflokkum. Að mörgu leyti hefur verslunin staðið sig ágætlega að undanförnu við að merkja vörur og annað, við höfum lagt áherslu á þetta t.d. í landbúnaðarafurðum, í kjötinu. Við viljum sjá skýrt hvað er íslenskt og hvað er ekki íslenskt. Mér finnst stundum skrýtið að sjá umbúðir utan um beikon sem ég þekki að er frá íslenskum framleiðanda en svo þegar maður fer að lesa smáa letrið er þetta svínakjöt frá Þýskalandi.

Varðandi pálmaolíu sem ég veit að margir neytendur myndu vilja forðast og velja annan vistvænni kost mætti verslunin gjarnan taka það upp að aðstoða okkur neytendur í þeim efnum. Þá má líka velta fyrir sér merkingum á vörum og hvaða kröfur við gerum til merkinga.

Ég ætla að nota mjög klassíska setningu, virðulegur forseti: Ég hafði ekki hugsað mér að lengja þessa umræðu neitt sérstaklega mikið. En ég er búin að vera að því með þessu. Mig langaði fyrst og fremst að lýsa stuðningi mínum við þessa þingsályktunartillögu og jafnframt segja að mér finnst ánægjulegt að sjá hvað þingmenn eru duglegir að koma hingað með mál sem tengjast umhverfismálunum. Það sýnir að þetta er stóra málið okkar. Stærsti hluti þingheims er mjög sammála um mikilvægi loftslagsmálanna og mikilvægi þess að ráðast í blandaðar og víðtækar aðgerðir til að ná árangri í þeim efnum.