150. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2019.

svör við fyrirspurnum.

[15:01]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég tel mig knúinn til að koma hingað upp til að ræða aðeins þann drátt sem er oft á því að fá svör við fyrirspurnum frá þingmönnum. Á vef Stjórnarráðsins var í lok febrúar 2018 birt frétt um fjárhagslegan ávinning ríkissjóðs vegna Kaupþings/Arion banka. Í fréttinni er sagt að ávinningurinn sé um 150 milljarðar. Þar er liður sem kallaður er matsvirði stöðugleikaeigna. Þar er einnig liður sem nefndur er aðrar eignir og hljóðar upp á 23,8 milljarða.

Ég óskaði eftir því í gegnum fjárlaganefnd að fá sundurliðun á því hverjar þessar eignir væru. Nú hefur svarið loksins borist, einu og hálfu ári síðar. Ég tek skýrt fram að ekki er við fjárlaganefnd að sakast eða starfsmenn nefndarinnar, þeir ýttu reglulega á eftir málinu. Það er fyrst og fremst við fjármálaráðuneytið að sakast. Í svarinu kemur fram að þetta eru fjórir liðir; laust fé, hlutabréf, skuldabréf, lán og aðrar eignir. Það tók sem sagt eitt og hálft ár að finna svar (Forseti hringir.) við þessum fjórum liðum. Ég verð að segja eins og er, herra forseti, að þetta er lítilsvirðing við þingið og eftirlitshlutverk þess. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)