150. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2019.

svör við fyrirspurnum.

[15:03]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur heyrt, og ekki í fyrsta sinn, að óánægja er með það stundum hve lengi dregst að svara fyrirspurnum. Því er fylgt eftir af hálfu þingsins með hefðbundnum hætti. Við leggjum ríka áherslu á að ráðuneyti biðji um lengri frest ef þau ná ekki að svara innan tilskilins frests og sömuleiðis er gjarnan ítrekuð beiðni um að svör berist ef mikill dráttur verður á. Af hálfu ráðuneyta er á móti bent á að tafir á svörum geti verið visst fall af fjölda fyrirspurna.