störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í dag birtust þær fréttir að samdráttur í útlánum til fyrirtækja væri mikill á milli ára og að á undangengnum 12 mánuðum væru heildarútlán til fyrirtækja frá lánakerfinu aðeins helmingur þess sem var á 12 mánaða tímabili árinu fyrr. Þetta endurspeglar auðvitað þá miklu kólnun sem er að verða í hagkerfinu og er mikið áhyggjuefni en endurspeglar um leið slaka samkeppnisstöðu íslenska bankakerfisins. Á sama tíma og stjórnvöld hreykja sér af því að Seðlabankinn hafi lækkað vexti um eitt heilt prósentustig á undanförnum mánuðum hafa kjörvextir banka á óverðtryggðum skuldabréfum lækkað mun minna, að því er lausleg athugun sýnir. Þeir eru enn þá svimandi háir, um og yfir 6%, þrátt fyrir 3,5% vaxtastig Seðlabankans.
Þetta er á sama tíma og hagkerfið vantar sárlega súrefni og við sjáum þennan mikla samdrátt í útlánum til fyrirtækja, til fjárfestinga í atvinnulífinu. Það verður að segjast eins og er að þessi staða nákvæmlega er algjörlega á ábyrgð stjórnvalda og þessarar ríkisstjórnar. Á sama tíma og verið er að kalla eftir súrefni út í hagkerfið er innlend bankaþjónusta ósamkeppnishæf, m.a. út af mjög háum álögum hins opinbera á bankakerfið, þ.e. bankaskatts, og ríkisstjórnin ætlar við þær aðstæður að fresta lækkun þess sama skatts. Á sama tíma er gríðarlega mikil eiginfjárkrafa á bankakerfið sem enn og aftur hækkar útlánakjör bankanna, enn og aftur staða sem er á ábyrgð stjórnvalda. Þetta hagkerfi vantar súrefni, þetta hagkerfi vantar aðgerðir, þetta hagkerfi vantar ríkisstjórn sem skilur efnahagsmál.