150. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2019.

störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að taka undir með síðasta hv. ræðumanni um árnaðaróskir til Samhjálpar. Ég ætlaði einmitt að ræða málefni almannaheillastarfsemi og þriðja geirans sem við köllum svo. Óumdeilt er að þar fer fram gífurlega mikilvægt starf á fjölbreyttu sviði, starf í samfélagslegri þágu og til almannaheilla, dýrmætt á svo marga vegu. Það er mjög erfitt að verðmeta hlutverk og framlag slíkrar starfsemi og í raun engin ein rannsókn til þar sem gerð hefur verið tilraun til að draga fram heildarumfangið, enda yrði það býsna flókið verk og erfitt þar sem geirinn er svo margbrotinn og yrði þá viðfangsefnið í slíkri rannsókn að skilgreina skilyrði til að fá einhverja raunhæfa niðurstöðu.

Við vitum hins vegar að framlagið og félagsleg verðmæti, velferðarframlagið, sjálfboðaliðaframlagið, forvarnaframlagið, mannúðarframlagið, lífsbjargirnar og ég gæti lengi talið, eru verðmæti langt umfram það sem við gætum t.d. nokkru sinni afrekað á fjárlögum hverju sinni.

Það segir okkur hins vegar að skynsamlegt er að styðja allt þetta fjölbreytta starf sem fer fram hjá óhagnaðardrifnum félagasamtökum af ýmsum toga og efla og styrkja sjálfboðaliðastarf í tugþúsundatali um allt land, og við gerum það. Við gerum ýmislegt, við erum með bein framlög, þjónustusamninga og tímabundin framlög. Við í hv. fjárlaganefnd erum í raun minnt reglulega á þá staðreynd, ekki síst í tengslum við umfjöllun um fjárlögin.

Hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra skipaði í apríl sl. starfshóp til að fjalla um skattalegt umhverfi þeirrar starfsemi sem fellur undir þriðja geirann og leggja fram tillögur í þeim tilgangi að efla og styrkja sjálfboðaliðastarf, hvetja einstaklinga og lögaðila til að leggja slíkri starfsemi lið og horfa af því tilefni til nágrannalanda og auka samræmi í lagareglum. Von er á skýrslu frá hópnum hvar ég sit og við fengum jafnframt kynningu á því að í bígerð er stofnun á rannsóknarsetri um þriðja geirann (Forseti hringir.) við Háskóla Íslands. Ég bind miklar vonir við að það efli rannsóknir og stuðning við almannaheillageirann.