störf þingsins.
Herra forseti. Allsherjar- og menntamálanefnd brá undir sig betri fætinum í gær og fór í vettvangsheimsókn til Akureyrar, í góðar og gagnlegar heimsóknir. Í framhaldi af því langar mig að tala um tvennt í dag, lögregluna og sýslumann. Þetta umdæmi er risastórt, nær frá Þórshöfn á Langanesi til Siglufjarðar, og er oft erfitt yfirferðar yfir veturinn, auk hálendisins sem þarf að sinna. Fyrir utan hin hefðbundnu störf hjá lögreglunni hefur embættið stutt við umbætur í málefnum þolenda ofbeldis, m.a. með því að taka þátt í þjónustumiðstöð fyrir þolendur ofbeldis sem heitir Bjarmahlíð og var opnuð 1. apríl sl. Mjög góð reynsla er komin á þessu tæpa hálfa ári sem liðið er frá opnun og alveg ljóst að löngu tímabært var orðið að bjóða upp á slíka þjónustu á Norðurlandi. Þá hefur einnig verið opnað útibú frá Barnahúsi sem hefur komið sér vel.
Embættið tók líka þátt í tilraunaverkefni ásamt Sjúkrahúsinu á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Norðurlands og Rannsóknamiðstöð gegn ofbeldi við Háskólann á Akureyri. Könnuð var reynsla þolenda kynferðisofbeldis af því að leggja fram kæru hjá lögreglu og þiggja sálfræðiviðtal að lokinni skýrslutöku og svo reynsla kærenda kynferðisofbeldis af því að fá tilkynningu um niðurfellingu héraðssaksóknara á kynferðisbrotamálum með því að vera boðaðir í viðtal á lögreglustöð í stað þess að fá sent bréf heim til sín. Þessar einföldu breytingar hafa skipt fólk afar miklu máli og sýna mikilvægi þess að horfa út fyrir kassann, ekki síst í svo viðkvæmum málum sem þessum. Við fengum einnig að sjá myndavélarnar sem eru á nokkrum stöðum í bænum og hafa gert gríðarlega mikið gagn og hjálpað til, m.a. við lausn á erfiðum líkamsárásarmálum.
Sýslumaðurinn sinnir nærþjónustu í héraði. Ef eitthvað bjátar á eða þörf er á einhverjum upplýsingum sem tengjast hinu opinbera leitar fólk gjarnan á skrifstofu sýslumanns. Aðalskrifstofan er á Húsavík en svo eru tvær skrifstofur, á Akureyri og á Siglufirði, og útibú á Dalvík. Sýslumaður kynnti okkur hugmyndir um samvinnu við sveitarfélögin, t.d. á jaðarsvæðum, um að hafa fastan starfsmann sem hefur þar búsetu til að tryggja betur nærþjónustu. Hann kynnti einnig fyrir okkur hugmynd um sáttaferli sem nær (Forseti hringir.) þvert yfir kerfið sem ég er sannfærð um að skili okkur öllum ávinningi og ég hvet ráðherra dómsmála til að kynna sér þetta.