150. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2019.

störf þingsins.

[15:19]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Herra forseti. Frelsi til flestra hluta er mikilvægt í íslensku samfélagi. Það verður að grundvallast á því að það sé jöfn staða, jöfn aðstaða og jafnrétti til að geta notið frelsisins. Í upphafi þessa þings var lögð fram skýrsla um sérstöðu þjóðkirkjunnar fram yfir önnur trúfélög og lífsskoðunarfélög í landinu. Þar kennir margra grasa og kemur skýrt fram, sem kemur væntanlega engum á óvart, að þjóðkirkjan nýtur umtalsverðs hagræðis umfram önnur sambærileg félög í landinu. Og þó að það sé ekki einhlítur mælikvarði má nefna að það eru um 13.000 kr. í peningum talið sem munar á því hvað kirkjan fær fyrir hvern meðlim umfram önnur trúfélög.

Þess vegna hefur verið lögð núna fram tillaga til þingsályktunar um að þegar verði hafist handa við að semja lagafrumvarp sem feli í sér fullan aðskilnað ríkis og kirkju. Tillagan er að mínu mati mjög hógvær. Gefinn er mjög rúmur tími til verksins. Ég reikna með að á næstu dögum verði mælt fyrir þingsályktunartillögunni og ég vonast sannarlega til þess að það fari fram vönduð og yfirveguð umræða um þetta stóra og mikla frelsismál.