skipun rannsóknarnefndar til að fara yfir starfshætti í Guðmundar- og Geirfinnsmálum.
Herra forseti. Ég kem hingað upp til að bregðast aðeins við ræðu hv. þm. Helga Hrafns Gunnarssonar af því að mér virtist af máli hans að fokið hefði í hann vegna þess að ég hefði sagst koma hingað í friði, koma hingað upp í þetta púlt í friði. Að koma með friði er ekki sagt til að smætta málið á nokkurn hátt. Að koma með friði er ekki sagt til að draga úr alvarleika málsins. Að koma með friði er kannski frekar sagt til að taka af allan vafa um að við getum öll með réttu og óttalaus staðið saman að því að skipa sérstaka rannsóknarnefnd Alþingis um þetta mál. Að við þurfum ekki að fara í við og þið, að við þurfum ekki að fara í keppni hverjum er mest ofboðið, að við þurfum ekki að fara í keppni hverjum blöskrar mest. Ég held að við séum bara komin yfir það og að við getum á þessum tímapunkti reynt að hefja okkur aðeins upp fyrir flokkapólitík og standa saman að þessu. Þetta er þess háttar mál að við getum hreinlega verið þarna saman. Það hefur tekið 40 ár. Við skulum ekki gera lítið úr þeirri baráttu sem hefur átt sér stað á síðustu 40 árum. Ég hvet þingmenn aftur til að standa saman í þessu og fara ekki í einhverja innbyrðis keppni.