150. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2019.

skipun rannsóknarnefndar til að fara yfir starfshætti í Guðmundar- og Geirfinnsmálum.

139. mál
[17:25]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég geri engar athugasemdir við að hv. þingmaður segist koma hingað í friði, ég trúi því og met það til fulls. Ég kom hins vegar hingað upp til að lýsa því að friðurinn í mínum huga er háður ákveðnum skilyrðum, skilyrðum sem voru brotin í þessu máli. Þökk sé því að ég hef þó enn þá, og flestir, það lítur út fyrir það, næga trú á lýðræðisfyrirkomulaginu á Íslandi til að trúa því að enn sé hægt að leiða hlutina á réttan kjöl í þessu máli. Það virðist gerast hægt og bítandi, mjög hægt og bítandi. En til að hafa það á hreinu var það ekki gagnrýni á orð hv. þingmanns sem ég kom hingað upp, heldur til að lýsa því í mínum eigin orðum hvernig ég sé málið.

Ég get voða lítið gert við því að í mig fjúki í hvert sinn sem þetta mál ber á góma. Það fýkur í mig í hvert einasta sinn sem ég hugsa um það. Ég á erfitt með að hafa hemil á tilfinningum mínum þegar kemur að þessu máli, ekki vegna þess að ég hafi einhverja sérstaka tengingu við þá einstaklinga — ég þekki reyndar einn af afkomendum eins sakborningsins, sem er vinur minn — en það er aðallega að sjá hvernig kerfið bregst alltaf við. Alltaf, segi ég, af allri minni reynslu. Það er svo stór hluti af kerfinu sem bregst alltaf við eins og það sé bara einhver vitleysa að vera að kvarta undan einhverjum hlutum eins og réttinum til að vera ekki pyndaður eða réttinum til að vera ekki frelsissviptur árum saman með röngu. Og eftir það geti liðið áratugir þar sem fólk fær ekki einu sinni uppreist æru fyrir dómstólum. Það er þetta sem svíður svo, virðulegi forseti, vegna þess að ég krefst þess hreinlega að búa í réttarríki, ég krefst þess að búa við lýðræði. Það er enginn friður án þessara tveggja hluta — við mig alla vega.

En ég virði orð hv. þingmanns að fullu og segi það líka að ef mér hefði verið boðið að vera með á þessari þingsályktunartillögu er ég ekki alveg viss um að ég hefði viljað það, einmitt vegna þess að ég finn það í sjálfum mér að ég þarf sem þingmaður og borgari að tjá mig mun harðar en þingsályktunartillagan gefur til kynna. (Forseti hringir.) En það er ekki gagnrýni. Það er bara munur á því hvernig mér líður með þetta mál eða hvernig mér finnst ég þurfa að nálgast málið, (Forseti hringir.) ég ber fulla virðingu fyrir þingmönnum og gagnrýni ekki á neinn hátt það að aðrir nálgist þetta öðruvísi, enda þarf vissulega einhverja samvinnu í að ná því í gegn.