150. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2019.

stuðningur til kaupa á fyrstu íbúð.

92. mál
[18:48]
Horfa

Flm. (Þorsteinn Víglundsson) (V):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Í stuttu máli má segja að frumvarpinu sé ætlað að koma til móts við þann vanda sem ungt fólk á gjarnan við að glíma við að koma sér upp sinni fyrstu eign eða í því tilfelli að komast jafnvel aftur í eigið húsnæði eftir að hafa misst það. Frumvarpið er sett fram til að rýmka þær heimildir sem til staðar eru í núgildandi lögum, bæði hvað varðar þá prósentu sem heimilt er að nýta í séreignarsparnaði, viðmiðunarfjárhæðir eru jafnframt reiknaðar upp, en ekki síður að útvíkka þann hóp sem getur nýtt sér úrræði sem þetta.

Ég held að þetta geti verið veigamikið mál einmitt til að koma til móts við mjög viðkvæman hóp. Núgildandi lög hafa m.a. verið gagnrýnd fyrir að nýtast kannski mun betur tekjuhærri einstaklingum sem eiga mun auðveldara með að safna sér umtalsverðum fjárhæðum, en með því að rýmka heimildirnar til að ná einnig til svokallaðrar tilgreindrar séreignar, þ.e. þess 3,5% iðgjalds sem heimilt er á almennum vinnumarkaði í dag og reiknað er með að gert verði heimilt á opinberum vinnumarkaði líka, að nýta af lögbundnu 15% iðgjaldi í séreign.

Frumvarpið kom áður fram á 149. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga þá og er nú lagt fram að nýju nánast óbreytt. Það sem breytt er í frumvarpinu nær til þriggja þátta. Í fyrsta lagi er lagt til að þessi heimild verði ekki einskorðuð við fyrstu kaup heldur einnig að ef viðkomandi hafi ekki átt fasteign undangengin þrjú ár og hafi ekki áður fullnýtt réttindi til nýtingar séreignarsparnaðar til fasteignakaupa verði heimilt að nýta slíkt samkvæmt lögunum. Þetta er gert m.a. til að koma til móts við þann stóra hóp sem missti húsnæði sitt í kjölfar hrunsins, hefur jafnvel aldrei komist inn á eignamarkað aftur og sækist eftir því en nær ekki nægjanlegum sparnaði í leiguhúsnæði. Allir sem þekkja til einhvers sem lent hefur í slíkri stöðu vita hversu erfitt það er að eiga jafnvel fjölskyldu og verða að borga leigu á leigumarkaði en vera jafnframt að leggja til hliðar fyrir útborgun í íbúð.

Þess vegna held ég að það sé mikið réttlætismál að útvíkka heimildina til þessa hóps. Þetta er viðkvæmur hópur, oft í mjög erfiðri fjárhagslegri stöðu þó að tíu ár séu liðin frá hruninu. Sama má raunar segja að sé hugsunin að baki öðrum þætti þar sem rýmkun er lögð til en það er sú krafa að séreignarsparnaður sé nýttur í samfellu. Í stað þess er lagt til að nýtingarrétturinn einskorðist við 120 mánaða sparnað í tíu ár en heimilt sé að gera hlé á. Þetta getur t.d. komið til móts við hópa sem flytja út einhverra hluta vegna, t.d. vegna náms eða starfs, eða hafa lent í því, eins og fyrr segir, að missa húsnæði og detta út af eignamarkaði.

Í þriðja lagi er meginbreytingin sú að þessi heimild nái einnig til hinnar svokölluðu tilgreindu séreignar, þess 3,5% iðgjalds sem heimilt verður að nýta af skyldutryggingu, af 15,5% iðgjaldi, inn í séreignarsparnað. Það hraðar, sér í lagi fyrir tekjulægri einstaklinga, mjög þeim tíma sem fólk getur náð að spara sæmilega fjárhæð í útborgun.

Þegar við horfum á vanda ungs fólks við að komast inn á fasteignamarkaðinn, sérstaklega tekjulægri einstaklinga, sjáum við augljóslega breytingu í tekjum yngra fólks, við sjáum það í kjarakönnunum. Ungt fólk hefur ekki notið sambærilegrar tekjuhækkunar og við sem eldri erum. Kann að vera að það sé vegna samsetningar af lengra námi en áður var, algengara er að ungt fólk fari beint í meistaranám, t.d. að loknu háskólanámi, en kannski er það ekki síður meira áhyggjuefni að minna framboð sé af vel launuðum störfum á vinnumarkaði fyrir ungt fólk, sem helgast m.a. af, eins og rætt hefur verið um í þessum sal, að sú starfafjölgun sem við höfum séð á undanförnum áratug eða svo er fyrst og fremst störf í ferðaþjónustu en t.d. störf í tækni- og sprotagreinum, sem eru oft vel borguð, hafa staðið í stað. Eins og vel er þekkt og er í umræðunni þessa dagana fer störfum á fjármálamarkaði fækkandi. Vel launuðum tækifærum fyrir vel menntað og ungt fólk hefur því miður fækkað á Íslandi og það endurspeglast m.a. í tekjuþróun þessa hóps á undanförnum árum. Ég held því að það sé mjög skynsamlegt að rýmka þessa heimild til þessa hóps.

Þegar við horfum t.d. til skýrslna sem unnar hafa verið um lífeyrissparnað okkar er alveg ljóst að sú kynslóð sem er að koma eða er nýkomin inn á vinnumarkaðinn og í það sem við gætum kallað nokkuð fullþroskað lífeyriskerfi, þar sem við erum með 15,5% skyldubundið iðgjald og allt að 6% því til viðbótar í séreignarsparnað — þetta er miklu meira en nægjanlegur sparnaður til að skapa viðkomandi mjög háa hlutdeild í ævitekjum sínum í eftirlaunum þegar þar að kemur. Það má þess vegna segja að vandi ungs fólks sé ekki ónægur sparnaður heldur má það einfaldlega ekki nýta nægjanlegan hluta þessa sparnaðar til húsnæðiskaupa. Þess vegna væri skynsamlegra að stjórnvöld beittu stuðningsaðgerðum sínum til kaupa í auknum mæli í gegnum séreignarúrræðið og með því að rýmka þá heimild sem, eins og fyrr segir, myndi koma þá tekjulægri einstaklingum sérstaklega til góða, að úr þessu gæti hlotist raunverulegur sparnaður eða raunverulegar fjárhæðir sem nýttust til útborgunar.

Þess má geta að málið kom fram á síðasta þingi, eins og áður segir. Ljóst er að stjórnvöld hyggjast leggja fram einhver mál til viðbótar þessu. Mér sýnist hæstv. fjármálaráðherra raunar vera með mjög keimlíkt mál á dagskrá í október, en eins og oft vill verða fá þingmannamál ekki framgang en góð mál eru síðan gerð að stjórnarmálum til að þau séu undir réttum hatti þegar þau koma fram. Ég hef að sjálfsögðu fulla trú á því að meiri hluti þingsins sé þroskaðri en svo að það þurfi endilega að vera með réttri yfirskrift. Þetta mál kemur óbreytt fram aftur og gengur lengra en hugmyndir fjármálaráðuneytisins í sömu efnum. Ég hef trú á því að það geti gagnast umræddum hópi betur. Ég vona svo sannarlega að það fái framgang hér. En til að gæta fullrar kurteisi vil ég nefna að mér varð á að gleyma að nefna meðflytjendur að málinu. Flutningsmenn eru, auk þess sem hér stendur, Björn Leví Gunnarsson, Hanna Katrín Friðriksson, Helgi Hrafn Gunnarsson, Guðmundur Ingi Kristinsson, Jón Steindór Valdimarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.

Að lokum legg ég til að málinu verði að umræðu lokinni vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar.