150. löggjafarþing — 10. fundur,  25. sept. 2019.

óháð úttekt á Landeyjahöfn.

84. mál
[19:01]
Horfa

Karl Gauti Hjaltason (M):

Frú forseti. Við ræðum tillögu til þingsályktunar um óháða úttekt á Landeyjahöfn. Ég er einn meðflutningsmanna tillögunnar ásamt öllum þingmönnum Suðurkjördæmis, fyrir utan samgönguráðherra sem af skiljanlegum ástæðum er ekki á tillögunni. Ég styð hana að sjálfsögðu heils hugar. Tillagan gengur út á að hæstv. samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra verði falið að hefja þegar óháða úttekt á Landeyjahöfn í samræmi við samgönguáætlun og er ráðherra gert að ljúka úttektinni fyrir lok marsmánaðar næstkomandi — en ekki fyrir lok maímánaðar, eins og hv. flutningsmaður sagði í ræðu sinni. Í tillögunni er gert ráð fyrir að það sé fyrir lok marsmánaðar næstkomandi, svo að því sé nú til haga haldið, vonandi er það rétt hjá mér. Mér finnst hitt kannski heldur langur tími. Málið gengur út á að úttekt sem áætluð er í samgönguáætlun verði flýtt, enda ekki vanþörf á miðað við það ástand sem hefur verið við og innan hafnarinnar á undanförnum árum eða allt frá því að hún var tekin í notkun fyrir rúmum níu árum.

Hvað er ég að tala um? Jú, höfnin hefur lokast snemma flest haust og oft hefur opnun hennar dregist langt fram eftir hverju vori. Eftir því sem ég man best hefur höfnin yfirleitt verið ónothæf fram yfir fermingar vor eftir vor. Vetraropnun hafnarinnar hefur verið næsta fátíður viðburður. Ef veðrinu hefur ekki verið um að kenna hefur oftast verið um sandburð að ræða sem fyllt hefur mynni hafnarinnar og næsta nágrenni en einnig hefur sandburður verið til mikils ama innan hafnarinnar.

Frú forseti. Tilkoma Landeyjahafnar á sínum tíma árið 2010 breytti miklu fyrir byggðina í Vestmannaeyjum þegar fólk gat ferðast milli lands og Eyja á 30 mínútum í stað nær þriggja klukkustunda siglingar og ekki síður vegna þess að fjöldi ferða jókst að sama skapi og fólk var ekki eins bundið við brottfarir ferjunnar og áður var. Það var því létt brúnin á Vestmannaeyingum sumarið 2010 þegar ferðir í Landeyjahöfn hófust og mikil bjartsýni ríkjandi meðal íbúa, fyrirtækja og þeirra sem voru títt á flækingi „upp á land,“ eins og það var í gríni kallað í Vestmannaeyjum, en auðvitað líka fyrir þá sem vildu sækja Eyjar heim, sem voru þó nokkrir, enda kom í ljós að ferðamannastraumur margfaldaðist á meðan höfnin var — og er — í fullri notkun. Þeir aðilar sem stunda þjónustu við ferðamenn, hótel, veitingastaðir og aðrir aðilar, sáu rekstrargrundvöll fyrirtækja sinna styrkjast mjög með tilkomu Landeyjahafnar. Í því sambandi má ekki gleyma því að þegar höfnin var hönnuð og byggð var gert ráð fyrir því að unnt væri að sigla í hana allt að 97% áætlaðra ferða á ársgrundvelli, ef ég man töluna rétt. Raunin varð allt önnur. Ekki þarf ég hér að fjalla mikið um þau vonbrigði sem tíðar og á stundum vetrarlangar lokanir hafnarinnar hafa valdið íbúunum sem margir hverjir byggja lífsafkomu sína á að samgöngur til og frá Eyjum séu í lagi. Það gefur slíka augaleið.

Frú forseti. Að mínu mati er gerð Landeyjahafnar hreint ekki lokið og höfnina á að klára. Sú úttekt sem hér yrði ráðist í þarf að ganga út á að finna út og rannsaka af ábyrgð hvaða lagfæringar þurfi að gera til þess að höfnin geti nýst eins og hún var byggð til í upphafi. Þannig er mikilvægt að þessi úttekt verði ítarleg og, eins og það er orðað í tillögunni, óháð í þeim skilningi að þar verði vandað og hlutlaust gengið til þess verks að teikna upp aðgerðir sem nauðsynlegt er að fara í til lagfæringa á Landeyjahöfn.

Frú forseti. Fátt er fegurra en að sigla í nágrenni við Vestmannaeyjar og virða þær fyrir sér af sjó. Það er stórbrotið að sigla með Herjólfi inn fyrir Ystaklett og sú sýn lætur fáa ósnortna sem það gera í fyrsta sinn. Það er því vert að ljúka þessari ræðu á upphafslínum hins þekkta þjóðhátíðarlags þeirra Oddgeirs Kristjánssonar og Ása í Bæ, „Heima“.

Hún rís úr sumarsænum

í silkimjúkum blænum

með fjöll í feldi grænum,

mín fagra Heimaey.

Loks vona ég að þetta mál fái skjóta afgreiðslu í nefnd svo að unnt sé að hefja störf við úttektina.