útlendingar.
Frú forseti. Fjöldi þeirra sem flúðu stríð, ofsóknir og átök fór yfir 70 milljónir á síðasta ári og er það mesti fjöldi sem Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna hefur kortlagt undanfarin 70 ár, þ.e. alla sína starfstíð. Annar hver flóttamaður er barn en mörg þeirra eru fylgdarlaus eða án fjölskyldu sinnar. Fylgdarlaus börn eru sérstaklega viðkvæmur hópur, berskjölduð fyrir ofbeldi og misnotkun, og oft og tíðum eru börn á flótta ekki með persónueinkennanleg skírteini. Aldur er hluti af auðkenni einstaklings og við mat á þörf og rétti umsækjanda um alþjóðlega vernd til tiltekinnar þjónustu er samfélagslega viðurkennt að það sé mikilvægt að fyrir liggi hvort umsækjandi sé barn eða fullorðinn. Börn eiga rétt á stuðningi og aðstoð í samræmi við stöðu sína sem börn. Til að greina aldur er hér á landi notast við líkamsrannsókn til greiningar á aldri út frá tannþroska. Fjórum mismunandi aðferðum er beitt og gefinn upp meðalaldur samkvæmt þeim og staðalfrávik. Annars staðar á Norðurlöndum er aldur einnig greindur út frá þroska tanna en samhliða er líka notast við greiningu á þroska beina. Danir einir greina aldur auk þess út frá kynþroska og með skoðun á kynfærum.
Markmiðið með frumvarpi þessu er að breyta framkvæmd aldursgreiningar á þann veg að hún fari fram með heildstæðu mati án líkamsrannsóknar þegar grunur leikur á að umsækjandi sem segist vera barn sé lögráða og ekki er hægt að staðfesta það með óyggjandi hætti. Víða hafa aldursgreiningar byggðar á líkamsrannsóknum verið gagnrýndar, bæði vegna siðferðislegra þátta og vísindalegrar ónákvæmni. Þá hafa komið fram tilmæli frá Evrópuráðinu, Evrópuráðsþinginu og ráðherranefnd Evrópuráðsins þar sem megininntak þeirra er að þegar vafi leikur á hvort umsækjendur sem sækja um alþjóðlega vernd séu börn skuli þeir ávallt metnir sem börn en ekki sem fullorðnir og að beitt skuli heildstæðu mati til að reyna að komast að aldri þeirra en ekki tanngreiningum sem eru taldar afar óáreiðanleg aðferð til að mæla aldur barna. Nýlega voru gefin út tilmæli Evrópuráðsins um framkvæmd aldursgreininga og þau kynnt aðildarríkjum.
Sú sem hér stendur stóð fyrir málþingi um framkvæmd aldursgreininga á flóttabörnum í Evrópu og um hin nýju tilmæli Evrópuráðsins um framkvæmd aldursgreininga hér á landi þann 29. mars sl. Meðal framsögumanna var Tomá? Bocek, sérstakur fulltrúi Evrópuráðsins í málefnum flóttamanna. Á málþinginu var m.a. rætt um frumvarp þetta sem var lagt fram á 149. löggjafarþingi og lýsti Tomá? Bocek yfir stuðningi sínum við þær breytingar sem kynntar eru í frumvarpinu. Í ályktun Evrópuráðsþingsins nr. 2295 frá 27. júní 2019 er rifjuð upp fyrri ályktun um barnvænar aldursgreiningar fylgdarlausra barna, auk þess sem hvatt er til heildstæðs mats. Í ályktuninni segir m.a. að þingið ítreki fyrri afstöðu sína, þ.e. fordæmi íþyngjandi aðferðir við aldursgreiningar sem geti haft þungbær áhrif á líkamlegan, tilfinningalegan og sálrænan þroska barna. Jafnframt fagnar þingið herferð þingmanna um mótun heildstæðra aðferða við aldursgreiningar.
Til að ná framangreindu markmiði eru lagðar til breytingar á 113. gr. laga um útlendinga þess efnis að aldursgreining skuli fara fram með heildstæðu mati og ávallt vera í samræmi við þá löggjöf sem tryggir réttindi barna. Í frumvarpinu er lögð áhersla á að ferli aldursgreiningar sé skýrt og gagnsætt og að sá sem gætir hagsmuna barnsins sé viðstaddur aldursgreininguna. Þá er mikilvægt að matið sé hlutlægt og óhlutdrægt og framkvæmt í samvinnu við þar til bæra sérfræðinga. Heildstætt mat skal þannig enn taka mið af aðstæðum, frásögn viðkomandi og fyrirliggjandi gögnum og upplýsingum, en auk þess skal eftir fremsta megni notast við skjalaleit, faglegt mat eða aðkomu sérfræðinga, svo sem sálfræðinga eða félagsfræðinga, til að greina aldur umsækjenda.
Ekki verður heimilt, ef frumvarpið sem um ræðir verður að lögum, að beita líkamsrannsóknum til að ákvarða aldur, svo sem með skoðun á þroska handa, hnéskelja eða tanna, nema enn leiki vafi á aldri útlendings þrátt fyrir að öllum úrræðum við hið heildstæða mat hafi verið beitt. Líkamsrannsókn skal vera síðasta úrræði sem stjórnvöld beita og skal eingöngu framkvæmd af viðeigandi sérfræðingum í votta viðurvist og ef fyrir liggur upplýst samþykki barns og/eða þess sem gætir hagsmuna þess. Líkamsrannsókn skal þá vera framkvæmd af sérfræðingum í tannlækningum eða eftir atvikum læknum sem eru tilnefndir af stjórnvöldum og skal líkamsrannsókn að auki ávallt fara fram í viðurvist sérfræðings á sviði sálfræði barna og unglinga eða í félagsráðgjöf. Ávallt skal taka mið af hagsmunum barnsins þegar metið er hvort leggja skuli fyrir viðkomandi að gangast undir líkamsrannsókn. Óheimilt er með öllu að beita skoðun á þroska kynfæra sem aðferð til að ákvarða aldur. Hér með er í fyrsta skipti kveðið skýrt á um að sú aðferð verði aldrei leyfð hér á landi. Þegar tekin er ákvörðun um að útlendingur gangist undir aldursgreiningu með heildstæðu mati skiptir miklu að viðkomandi sé leiðbeint skýrt og skiljanlega og upplýstur um ástæður þess að hann gangist undir slíkt mat.
Frú forseti. Það er til þverpólitísk nefnd um endurskoðun laga og lagaframkvæmdar um útlendingamál en því miður hefur hún ekki náð takti í störfum sínum. Á meðan nefndin hefur ekki starfað sem skyldi og ekki fengið það skjól sem hún þarf til þess hafa komið fram breytingar á lögum um útlendinga úr ranni dómsmálaráðuneytisins. Á meðan svo er, á meðan þessi heildstæða endurskoðun laga og lagaframkvæmdar um útlendingamál hefur ekki farið fram, er sérstaklega brýnt að mínu mati að þingmenn geri nauðsynlegar breytingar á lögum um útlendinga með mannúð og mannvirðingu að leiðarljósi. Því vona ég að þegar þetta mál kemur til kasta og meðferðar hv. allsherjar- og menntamálanefndar verði umfjöllunin góð og vönduð og að málið fái þann meðbyr og stuðning í nefndinni sem það á skilið.