útlendingar.
Frú forseti. Ég fagna þessu máli og er nú kominn í pontu einkum til að segja að Samfylkingin, sá flokkur sem ég sit fyrir á þingi, hefur ítrekað gagnrýnt tanngreiningar. Logi Einarsson, hv. þingmaður flokksins, sendi á síðasta ári spurningar til þriggja ráðherra, heilbrigðisráðherra, dómsmálaráðherra og menntamálaráðherra, um aldursgreiningar með tanngreiningum. Það er mikilvægt að undirstrika að börn sem sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi hafi sömu mannréttindi og önnur börn hér á landi. Íslensk stjórnvöld lögfestu barnasáttmálann árið 2013 og hann gildir sem lög á Íslandi. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að berjast fyrir mannréttindum allra barna, jafnt barna sem eru alin upp hér á landi, þeirra sem í neyð sinni leita til Íslands og einnig barna sem búa við hörmungar erlendis. Hér er um að ræða algild réttindi.
Hæstv. heilbrigðisráðherra studdist í svari sínu við mat landlæknis þar sem segir að sérfræðingar sem vinna að aldursgreiningum vinni samkvæmt faglegum kröfum og af virðingu við viðkomandi einstaklinga og að réttarlæknisfræðilegar aldursgreiningar barna og ungmenna byggist á alþjóðlegum og vísindalega viðurkenndum og gagnreyndum aðferðum. Í þessu svari kemur líka fram að nákvæmni aldursgreininga á tönnum sé að vísu umtalsverð en þó ekki óskeikul. Þær aldursgreiningar sem byggja á líkamsrannsóknum og röntgenmyndatökum af tönnum eru mjög umdeildar. Tannlæknar eru ósammála um áreiðanleika og vísindalegt gildi slíkra rannsókna. Þannig hafa t.d. tannlæknasamtök Bretlands sagt þær vera óviðeigandi og ósiðlegar vegna þess að þær gefa einmitt aldrei nákvæmar upplýsingar um aldur. Þær eru ekki óskeikular. Auk þess hafa alþjóðlegar stofnanir og mannréttindasamtök á borð við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðið og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna gagnrýnt þessar aðferðir harðlega. Það þarf að nota heildstætt mat við aldursgreiningu á börnum, svo sem með viðtölum í Barnahúsi sem eru þá tekin af sérfræðingum í málefnum barna, sálfræðingum og félagsráðgjöfum. Það þarf að muna og hafa ævinlega í heiðri að börnin eiga alltaf að njóta vafans. Ef vafi leikur á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd er 17 eða 18 ára skal viðkomandi njóta vafans.
Það kemur fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Loga Einarssonar að heildrænt mat fari fram hjá Útlendingastofnun en maður hefur á tilfinningunni, eins og kannski stundum áður, að þarna sé heildrænt mat meira eins og huggulegt orðalag sem er notað til skrauts vegna þess að engir félagsráðgjafar eða sálfræðingar koma að þessu mati hjá stofnuninni og í raun er ekki farið eftir því ferli sem ráðherrann lýsir í svari sínu. Menntamálaráðherra vísaði í sínu svari eiginlega til sjálfstæðis háskóla undan afskiptum ríkis og fjárveitingavalds sem ég tel að eigi ekki við í þessu tilviki.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð öllu fleiri en ítreka að ég og samþingsmenn mínir í Samfylkingunni styðjum þetta mál heils hugar.