150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

bótakröfur í Guðmundar- og Geirfinnsmáli.

[10:42]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Ríkislögmaður kemur fram fyrir hönd forsætisráðherra í umboði forsætisráðherra og rétt eins og aðrir lögmenn á hann skýlausan rétt á því að vera ekki samsamaður með umbjóðanda sínum. Það er algjörlega skýrt hvar ábyrgðin liggur. Ég er hins vegar ánægður að heyra að það verði nýjar vendingar í málinu en ég spyr: Af hverju núna? Af hverju var þetta ekki gert fyrr?

Mig langar að spyrja líka hvort ekki hafi hvarflað að forsætisráðherra að breyta málsaðstæðum þar sem bótaskylda væri a.m.k. viðurkennd og krafa um málskostnað felld niður. Aðalatriðið í þessu máli er að það fái farsælar lyktir. Þetta snýst um æru þjóðarinnar og þetta hefur tekið 40 ár. Er ekki komið nóg, hæstv. forsætisráðherra?