greinargerð ríkislögmanns.
Herra forseti. Það hefur komið í ljós í fyrirspurnum vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálanna að forsætisráðherra hefur ekki haft auga á málinu. Það hefur komið fram að greinargerðin var send, ekki bara í forsætisráðuneytið heldur fjármálaráðuneytið og dómsmálaráðuneytið og enginn ráðherranna hefur kynnt sér greinargerðina í stærsta og erfiðasta dómsmáli í íslenskri réttarsögu. Það er hægt að hrósa forsætisráðherra fyrir það að hún var fljót að biðjast afsökunar en málinu var síðan ekki fylgt eftir. Svo á að fara að draga það inn í þingsal sem vel að merkja hæstv. samgönguráðherra sagði fyrr í vikunni að við gerðum vonandi ekki.
Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra, sem las greinilega ekki greinargerðina, hvor hún sé sammála henni. Er hæstv. forsætisráðherra sammála þeirri greinargerð sem fór út fyrir ríkisins hönd?
Við skulum muna það líka, virðulegi forseti, að umboðsmaður Alþingis sagði sérstaklega: Ríkislögmaður er ekki eitthvert sjálfstætt afl. Ríkislögmaður er lögmaður eins og allir aðrir lögmenn og setur fram ýtrustu kröfur fyrir hönd umbjóðenda sinna. Og hverjir eru umbjóðendur ríkislögmanns í þessu máli? Það er íslenska ríkisstjórnin, það er ríkið undir forystu Vinstri grænna, Katrínar Jakobsdóttur, í samstarfi við Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk.
Þannig er málið statt núna, að við getum ekki komið sómasamlega fram og afgreitt það. Það er ekkert að því að það fari fyrir dómstóla hver bótafjárhæðin eigi að vera. En að við skulum fara eins langt og greinargerðin segir er eitthvað sem er miklu meira en umhugsunarefni. Þar ættu ráðherrar að skammast sín nema ráðherra segi, og sé sammála m.a. hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni og fleirum, að þetta sé bara embættismannaverk.
Hvers konar er þetta? Er ekki kominn tími til að við drögum inn mennskuna í þessu ömurlega máli? Mennskan kemur ekki frá ríkisstjórn Íslands núna þannig að ég spyr hæstv. ráðherra: (Forseti hringir.) Er hún sammála greinargerðinni eins og hún kemur frá ríkislögmanni fyrir hönd (Forseti hringir.) ríkisstjórnar Íslands?