150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

greinargerð ríkislögmanns.

[10:58]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Ég hef átt fund með ýmsum málsaðilum og rætt við þá um þetta mál og sömuleiðis þá hugmynd mína að koma hingað inn með frumvarp. Það hef ég gert á fyrri stigum málsins með ýmsum aðilum, þeirra á meðal Guðjóni Skarphéðinssyni. Í frumvarpinu felst heimild til að greiða bætur á þeim grundvelli sem rakinn er síðan í greinargerð. Í frumvarpinu felst ekki nein tilraun til að taka af fólki réttinn til að fara síðar í dómsmál heldur er sá réttur áfram við lýði. Á þeim grunni munum við eiga samtöl við aðila máls og erum að eiga samtöl við aðila máls og höfum verið í þessum mánuði.