dómur Landsréttar vegna lífeyrisgreiðslna TR.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn. Hann rakti hér mistök við lagasetningu á sínum tíma við breytingar á almannatryggingalögunum og hverju þau hefðu valdið. Við smíði frumvarpsins, yfirlestur þess í fjármála- og forsætisráðuneyti, yfirferð í þinginu, í nefndastarfi, umsögnum og öðru kom enginn auga á þessi mistök sem síðan voru leiðrétt í febrúarmánuði 2017. Þá voru vissulega tveir mánuðir liðnir frá gildistöku laganna og um það snýst þessi dómur, að fá greiðslu fyrir þá tvo mánuði sem þarna um ræðir.
Heildarupphæðina ætla ég að rekja hér á eftir en eðli máls samkvæmt lét ríkið á það reyna hvort þetta hefði verið gert með réttum hætti. Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að ríkið hefði gert þetta rétt. Landsdómur sneri því við og Hæstiréttur vísaði málinu frá.
Heildarupphæðin sem af þessu hlýst og greiðslur eru að hefjast vonandi í þessum mánuði eða næsta eru um 6 milljarðar kr. Þessi dómur felur í sér að heildargreiðslurnar sem greiddar verða út verði 6 milljarðar. Varðandi málið sem var látið reyna á hjá Flokki fólksins, heildargreiðslur vegna þess voru 60.000. Ég sé ekki eftir þeim fjármunum sem fara í þetta vegna þessara mistaka. Það sem mér finnst blóðugt í þessu máli er að það eru ekki allir tekjulægstu hóparnir sem þarna fá fjármagn.
Tvær tekjuhæstu tíundirnar í hópi aldraðra fá rétt tæpa 3 milljarða af þessum 6 milljörðum. Stærstu leiðréttingarnar í þessum tekjutíundum eru 400.000–500.000 kr. á hvern einstakling þannig að málið sem var höfðað á sínum tíma á grundvelli 60.000 kr., sem mér finnst algerlega skiljanlegt, skilar sér því miður (Forseti hringir.) að helmingi til, 3 milljarðar, til tveggja hæstu tekjutíunda samfélagsins og það finnst mér blóðugt. (Forseti hringir.) Mér finnst það sorglegt og ég hefði viljað nota þessa fjármuni til að bæta lægstu tekjutíundirnar frekar.