dómur Landsréttar vegna lífeyrisgreiðslna TR.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin, en skelfing voru þau rýr. Ef við gerum mistök viðurkennum við mistökin og bætum fyrir þau en Alþingi fékk dóm, það braut lög og hvort það bitnar á þeim sem hafa mikið eða lítið skiptir bara engu máli í því samhengi. Ef þú brýtur lög og átt að bæta það þá gerirðu það. Og það er út í hött að móðgast og reyna að verja það að þetta hafi farið til þeirra sem eru með hæstu tekjurnar en ekki þeirra sem eru með þær lægstu. Við getum alveg snúið því við, gjörsamlega snúið því við. Það er alltaf verið að níðast á þeim sem minnst hafa og þeir græða sem mest hafa. Það hefur ekkert með það að gera, en þið eigið að standa við orð ykkar. Það sem er furðulegast í þessu er að enginn hefur beðist afsökunar eftir á. Það hefur enginn beðist afsökunar. Framsóknarflokkurinn gleymdi þessu og Sjálfstæðismenn og síðar voru það Sjálfstæðismenn, Viðreisn og Björt framtíð sem samþykktu þetta. Það hefur enginn beðist afsökunar enn þann dag í dag.