framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum 2020--2023.
Herra forseti. Ég vil byrja á að fagna þeirri tillögu sem hér er komin fram um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2020–2023. Það er mjög mikilvægt að við höfum einhverja áætlun og einhverja sýn á það hvað við viljum helst gera. Það hefur komið fram í máli hæstv. forsætisráðherra að jafnréttismálin eru henni mjög hugleikin og hún tók við jafnréttismálunum að hluta þegar ríkisstjórnin sem nú situr varð að veruleika. Það er kannski verra sem manni sýnist vera í þessari framkvæmdaáætlun, þ.e. að maður leyfir sér að efast um að það náist að framkvæma það sem sagt er að sé í bígerð. Þá er ég aðallega að horfa á þær krónur sem áætlað er að setja í tiltekin verkefni á fjögurra ára tímabili, 1 millj. kr. í Jafnréttissjóð, 10 millj. kr. á ári í framkvæmdasjóð jafnréttismála, 1 millj. kr. á fjórum árum til fræðslu jafnréttisfulltrúa. Maður getur haldið aðeins áfram með þetta, jafnrétti og byggðamál fá 3 millj. kr. á fjögurra ára tímabili.
Auðvitað fæst ekki allt með krónum en við vitum samt að ef á að fara í einhverjar framkvæmdir, ef á að fara í alvöruaðgerðir, ef á að fara í greiningu, rannsóknir og þess háttar, þarf að fylgja því ákveðið fjármagn. Ég hef áhyggjur af þessu, ég held að við meðferð hv. allsherjar- og menntamálanefndar verði að fara af alvöru ofan í þessar tölur og skoða hvað þarna er að baki. Hvernig eru þessar tölur fundnar? Hver áætlar? Er eitthvað að marka þær? Af því að tíminn er ekki mjög langur ætla ég ekki að fara nánar ofan í nákvæmlega þetta en ég held að hv. þingmenn í allsherjar- og menntamálanefnd verði að gera það.
Þá vil ég beina sjónum mínum að fæðingarorlofinu. Um það er fjallað sérstaklega í þessari jafnréttisáætlun. Við í Samfylkingunni styðjum það að sjálfsögðu og fögnum því að það fer að bresta á með lengingu fæðingarorlofs, enda lagði Samfylkingin til í síðustu ríkisstjórn sem hún átti sæti í, á hinum erfiðu tímum 2009–2013, að fæðingarorlofið yrði lengt í 12 mánuði. Það var samþykkt en ríkisstjórnin sem tók við eftir það, 2013, ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, felldi það úr gildi þrátt fyrir að þjóðarskútan væri komin á aðeins beinni braut.
Varðandi fæðingarorlofið tek ég undir það sem hefur komið fram sem snýr að því að horft verði sérstaklega á þá hópa sem ekki eru í meginmenginu, þá hópa þar sem ekki er um að ræða tvo foreldra inni á heimili sem eru í svipaðri stöðu og geta því deilt svipuðu fæðingarorlofi, haft fimm mánuði hvort og skipt svo á milli sín tveimur mánuðum. Við þurfum líka að horfa á þá hópa þar sem annar aðilinn er í mjög vondri stöðu, fær mögulega bara fæðingarstyrk sem gerir það að verkum að fjárhagur fjölskyldunnar fer algjörlega á hvolf þá fimm mánuði sem sá aðili á að taka fæðingarorlof. Við verðum að horfa á þær fjölskyldur þar sem ekki eru tveir foreldrar af því að börn þeirra foreldra búa við lakari kost en börn foreldra sem búa saman. Það er algjörlega óásættanlegt í nútímasamfélagi á Íslandi í dag að við mismunum börnum eftir því hvort foreldrarnir búa saman eða ekki. Og svo eru líka þeir foreldrar sem eiga þess hreinlega ekki kost vegna ytri aðstæðna að deila fæðingarorlofi með hinum aðilanum. Það er tekið tillit til þess í fæðingarorlofslögum ef viðkomandi getur vegna sjúkleika alls ekki sinnt foreldrahlutverki sínu og það er líka tekið tillit til þeirra sem búa við frelsisskerðingu, svo sem fanga, en það er ekkert tillit tekið til þeirra sem eignast barn með erlendum einstaklingum sem fá ekki leyfi til dvalar á Íslandi til að vera með börnunum sínum. Það er að mínu mati óásættanlegt. Við þurfum að tryggja jafnrétti allra barna á Íslandi.
Á bls. 4 er fjallað um jafnlaunavottun og jafnlaunastaðal og þar vil ég vekja athygli á því sem kemur fram í umsögnum ASÍ, BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Í stýrihópi sérfræðinga Stjórnarráðsins um framkvæmd vottunar- og faggildingarmála eiga sæti fulltrúar frá forsætisráðuneyti, atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti og Jafnréttisstofu, en það gleymdist algjörlega að taka inn í þennan hóp fulltrúa verkalýðshreyfinga og atvinnulífs. Það hefur verið gagnrýnt mjög og vona ég að þingmenn í hv. allsherjar- og menntamálanefnd hafi það í huga.
Ég fagna því sem stendur í kaflanum um karla og #metoo. Það er gríðarlega mikilvægt að unnið verði að vitundarvakningu um ábyrgð og hlutverk karla í tengslum við #metoo, en ég vek athygli á að í kostnaðaráætlun stendur að þetta sé fjármagnað. Þá spyr ég enn og aftur: Fjármagnað hvernig? Jafnréttisstofa á að sjá um þetta en hefur hún fengið aukið fjármagn til að sinna því? Það er ekki nóg að skella öllum verkefnunum á stofnanir en koma svo á móti með aðhaldskröfu til hennar sem verður þá annaðhvort að sinna verkefninu illa eða henda út öðrum nauðsynlegum verkefnum. Alþingi þarf að vera meðvitað um þetta.
Ég vek líka athygli á því sem kemur fram um kynbundið og kynferðislegt ofbeldi og um framkvæmd Istanbúl-samningsins. Þar er auðvitað verið að framfylgja samningi Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi, gríðarlega mikilvægum samningi frá 2011. Við megum ekki loka augunum fyrir því að öll kyn þurfa að þola ofbeldi. Við verðum að hleypa öðrum kynjum inn í þá umræðu. Þess vegna skiptir líka máli í svona plaggi sem við sendum frá okkur, sem er jafnréttisáætlun, að við viðurkennum það að öll kyn verða fyrir ofbeldi og við þurfum að veita þeim öllum vernd.
Það eru tveir punktar í viðbót sem mig langar að fjalla um, ég ætla að fara hratt yfir sögu. Varðandi lið 24 um jöfn tækifæri kynjanna í alþjóðaviðskiptum held ég að það væri snjallt hjá ríkisstjórninni að byrja heima hjá sér en dæmi um halla þar var t.d. á viðskiptafundi sem haldinn var með varaforseta Bandaríkjanna, Mike Pence, í byrjun mánaðarins. Þar var handvalin sjö manna sendinefnd af ríkisstjórninni hvar í sátu tvær konur og fimm karlar. Það finnst mér ekki sérstaklega góð ásýnd fyrir íslenskt viðskiptalíf í alþjóðaviðskiptum. Við þurfum að gæta að þessu.
Að lokum, herra forseti, vil ég segja að mér þykir mjög mikilvægt að þegar forsætisráðherra talar fyrir jafnrétti tali hún fyrir jafnrétti allra. Jafnréttisáætlun þar sem um er að ræða jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er góðra gjalda verð en ég skora á ríkisstjórnina að víkka út jafnréttissjónarhorn sitt og líta á jafnrétti allra, jafnrétti milli fátækra og ríkra, jafnrétti milli lífskjara fatlaðra og frískra, innlendra barna og erlendra. Eins og hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir talaði um rétt áðan er augljóst að konum fjölgar mjög í hópi þeirra sem eru að bugast á vinnumarkaði og þeirra sem fara yfir í örorku. Það kemur til af því að það er ekki jafnrétti meðal stétta á Íslandi á vinnumarkaði. Þar hallar mjög á konur. Við þurfum að horfa á jafnrétti í víðara samhengi. Annars fagna ég þessari tillögu og mun að sjálfsögðu fylgja henni vel eftir.