endurskoðun á ráðstöfun almannafjár við gæðastýringu í sauðfjárrækt.
Forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á ráðstöfun almannafjár við gæðastýringu í sauðfjárrækt. Flutningsmenn eru auk mín aðrir þingmenn úr þingflokki Viðreisnar. Ég vil byrja á að lesa tillöguna upp orðrétt, með leyfi forseta, en hún er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að fela sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra að endurskoða ráðstöfun almannafjár við gæðastýringu í sauðfjárrækt, með það að markmiði að landnýtingarþáttur hennar samræmist lögum og góðum stjórnsýsluháttum. Ráðherrarnir setji nýjar reglur um viðmiðunarmörk fyrir ástand heimalanda, upprekstrarheimalanda og beitilanda á afrétti, sem byggist á ráðgjöf Landgræðslunnar um slík viðmið og tryggi að greiðslur verði ekki inntar af hendi til þeirra framleiðenda sem liggur fyrir að nái ekki núgildandi viðmiðum. Við þá vinnu verði jafnframt tryggt að núgildandi landbótaáætlanir samkvæmt reglugerð um gæðastýrða sauðfjárframleiðslu verði felldar úr gildi og landnotendum gert að gera nýjar landbótaáætlanir sem standist lög og ný viðmið.
Endurskoðun verði lokið og ný viðmið sett fyrir 1. janúar 2020.“
Herra forseti. Þetta er í sjálfu sér ekki flókin tillaga. Hún snýst samt um veigamikla þætti á borð við bætta landnotkun sem lið í aðgerðum á sviði loftslagsmála. Hún snýst líka um meðferð okkar á fjármunum skattgreiðenda og um rétt neytenda til að þekkja vöruna sem þeim stendur til boða. Hún snýst um sanngjarna samkeppnisstöðu þess mikla meiri hluta sauðfjárbænda sem leggur sig fram við að standa rétt að málum. Að lokum snýst tillagan um góða og rétta stjórnsýsluhætti.
Í riti Ólafs Arnalds, prófessors við Landbúnaðarháskóla Íslands, sem ber titilinn Á röngunni: Alvarlegir hnökrar á framkvæmd landnýtingarþáttar gæðastýringar í sauðfjárrækt og kom út í sumar, er farið ítarlega yfir þá vankanta sem finna má á því hvernig landið okkar er nýtt í sauðfjárrækt. Samkvæmt þeim gögnum sem fram kom í skýrslunni — og var nú alls ekki átakalaust fyrir höfundana að koma höndum yfir og ég kem betur að því á eftir — er talið að 10–20% fjárstofnsins gangi á svæðum þar sem ástand og eðli vistkerfa standist ekki viðmið sem eru sett í tengslum við framkvæmd núverandi búvörulaga. Þeir sem eigi þá gripi hafa því fengið greiðslur úr ríkissjóði sem samræmist ekki ákvæðum laga þar um.
Eitt af markmiðum í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er bætt landnotkun þar sem dregið verði úr losun. Þar kemur fram að kolefnishlutleysi verði ekki náð nema með stóraukinni kolefnabindingu í gróðri og jarðvegi og með minni losun vegna landnotkunar. Í þeirri þingsályktunartillögu sem ég mæli hér fyrir er stjórnvöldum falið að lagfæra ákveðna vankanta sem bent hefur verið á og gera löngu tímabærar úrbætur á þeirri framkvæmd sem landnýtingarþáttur í gæðastýringu sauðfjárræktar er. Heildarstuðningur við sauðfjárrækt árið 2019 samkvæmt sauðfjársamningi er tæpir 4,9 milljarðar kr., þar af eru greiðslur vegna gæðastýringar tæpir 1,7 milljarðar kr. Landnýtingarþátturinn í gæðastýringu í sauðfjárrækt er sá hluti stuðningsgreiðslna til bænda sem er bundinn ákveðnum viðmiðum varðandi ástand lands og landnýtingar. Þessi landnýtingarþáttur var settur á til að bregðast við bágri stöðu vistkerfa og miklu jarðvegsrofi á landinu öllu í samræmi við kortlagningu Rannsóknastofnunar landbúnaðarins og Landgræðslunnar. Á þeim árum sem liðin eru frá því að landnýtingarþátturinn var færður inn í stuðningskerfi landbúnaðarins — það er rúmur áratugur síðan — hefur engum framleiðanda verið synjað um vottun að landnotkun og því ekki verið hafnað að landbótaáætlanir standist viðmið um sjálfbæra landnýtingu. Þetta væri vissulega fagnaðarefni ef það væri ekki svo að á undanförnum árum hefur verið bent á veigamikla hnökra við framkvæmd þessara áætlana.
Landgræðslan hefur í samskiptum sínum við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið og umhverfis- og auðlindaráðuneytið bent á að viðmið og framkvæmd landnýtingarþáttar gæðastýringarinnar standist ekki fagleg sjónarmið. Þau samskipti hafa nýverið verið rakin í áðurnefndu riti Ólafs Arnalds þar sem farið ítarlega yfir þá vankanta sem finna má á framkvæmdinni. Kemur þar m.a. fram að mikið skorti á að nútímaleg þekking á sviði beitarvistfræði sé nýtt við framkvæmdina, að viðmið sem notuð eru standist ekki faglega skoðun, að landbótaáætlanir hafi verið samþykktar þótt ljóst sé að landgæði nái ekki lágmarksviðmiðum á samningstíma og séu reyndar fjarri því að gera það. Talið er að 10–20% fjárstofnsins gangi af þeim sökum á svæðum þar sem ástand og eðli vistkerfa standast ekki viðmið sem sett eru í tengslum við framkvæmd núverandi búvörulaga. Þeir sem eiga þessa gripi hafa því fengið greiðslur úr ríkissjóði þrátt fyrir að uppfylla ekki nauðsynleg skilyrði samkvæmt ákvæðum laga þar um.
Þá hafa Landgræðslan, Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands bent á að viðmiðin sem beitt er standist ekki eðlilegar kröfur, þau séu ekki viðurkennd af Landgræðslunni og kunni að vera í andstöðu við skilyrði búvörulaga, laga um landgræðslu og laga um náttúruvernd. Alþingi ber að tryggja að náttúran njóti vafans og sauðfjárrækt sé ekki stunduð á landsvæðum sem eru of viðkvæm til að beit standist kröfur um ábyrga og sjálfbæra landnýtingu. Það veikir líka samkeppnisstöðu mikils meiri hluta sauðfjárbænda sem stenst allar kröfur og fylgir ýtrustu viðmiðum um landnotkun með tilheyrandi tilkostnaði og óhagræði að jafnháir styrkir séu greiddir til þeirra sem ekki uppfylla grunnskilyrðin. Vottanir á borð við þessa kunna jafnframt að hafa áhrif á val neytenda sem vilja láta umhverfissjónarmið stýra vali sínu við neyslu. Raunar má færa fyrir því rök að neytendur dilkakjöts sem kjósa að kaupa afurðir sem framleiddar eru með ábyrgum hætti með tilliti til umhverfissjónarmiða hafi verið blekktir. Þjóðin hefur ríkan hag af því að almannafé sé eingöngu varið til sauðfjárræktar sem er sjálfbær og gengur ekki með ótilhlýðilegum hætti á vistkerfi landsins. Það er brýnt að viðkomandi ráðherrar endurskoði án tafar landnýtingarþáttinn í gæðastýringu og tryggi að viðmið sjálfbærrar landnýtingar séu í samræmi við lög og góða stjórnsýsluhætti og að þeim sé fylgt til samræmis við eðlilegar kröfur að mati Landgræðslunnar.
Herra forseti. Ég geri fastlega ráð fyrir að umrædd skýrsla Ólafs og þau gögn sem hann aflaði sér með harðfylgi séu til skoðunar hjá ráðherrum umhverfis- og landbúnaðarmála í tengslum við samstarfsverkefni sem þeir kynntu í janúar síðastliðnum við sauðfjárbændur um loftslagsvænni landbúnað. Samkvæmt fréttum var samþykkt að verkefnið yrði þróað á árinu og framkvæmd þess falin Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins í samstarfi við Landgræðsluna, Skógræktina og sauðfjárbændur. Það er síðan efni í aðra umfjöllun og aðra rannsókn — og í kjölfarið úrbætur — hversu erfiðlega gekk að afla gagna um þessi mál. Slíkt er sannarlega ekki í anda gegnsærrar opinberrar stjórnsýslu þegar kemur að meðferð opinberra fjármuna. Þessir erfiðleikar leiddu til þess að kæra þurfti málsmeðferð Matvælastofnunar til úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Úrskurðurinn var Ólafi Arnalds í hag og í kjölfarið fengust afhent margs konar gögn um meðferð landsins. Skoðun gagnanna leiddi í ljós, að sögn Ólafs og þeirrar skýrslu sem hann vann í kjölfarið, að margt hefur farið úrskeiðis og þörf er á að gera grein fyrir þróun og stöðu þessara mála á opinberum vettvangi. Ólafur gerir þessu öllu mjög ítarleg skil í því riti sem ég hef vísað til og ber heitið Á röngunni: Alvarlegir hnökrar á framkvæmd landnýtingarþáttar gæðastýringar í sauðfjárrækt. Það er hins vegar rétt og mikilvægt að ítreka hér það sem fram kemur hjá Ólafi að málið varðar aðeins um 3% landbúnaðar og um 15% sauðfjárræktar.
Herra forseti. Slæm staða íslenskra vistkerfa og jarðvegseyðing eru meðal helstu umhverfisvanda lands og þjóðar. Fjármunum til sauðfjárbænda er beint í gegnum sérstakt greiðslukerfi þar sem hluti styrkjanna er háður því að framleiðslan standist ákveðnar gæðakröfur. Meðal þeirra eru kröfur sem varða umhverfisáhrif sauðfjárbeitar, að framleiðslan standist viðmið fyrir sjálfbærni og ástand landsins sem er beitt á. Niðurstaðan virðist þó sú að almannafé — hluta þessara styrkja — sé varið í að styðja við óábyrga landnýtingu þar sem viðmið eru ekki uppfyllt að mati sérfræðinga og lagastoð þeirra viðmiða er umdeild.
Hér má nefna að lokum að Landvernd og Náttúruverndarsamtök Íslands hafa sent inn formlega ábendingu til Ríkisendurskoðunar vegna ráðstöfunar á almannafé í tengslum við gæðastýringu í sauðfjárræktinni þar sem sagt er að vafi leiki á að framkvæmdin standist lög og kröfur um lögmæta stjórnsýsluhætti. Í ábendingunni er málið reifað ítarlega og í lokaorðum segir að í ljósi þess sem fram hefur komið um framkvæmdina krefjist samtökin þess að landnýtingarþáttur gæðastýringarinnar verði felldur niður í núverandi mynd og lögmætum aðila falið að semja nýjar reglur. Greiðslur samkvæmt gæðastýringarhluta samnings ríkis og bænda til þeirra framleiðenda sem ekki standast núverandi viðmið og munu ekki gera á samningstíma núverandi landbótaáætlana verði stöðvaðar, enda standist slík ráðstöfun almannafjár ekki lög, ekki reglur og ekki kröfur um góða stjórnsýsluhætti.
Sú tillaga sem ég mæli hér fyrir lýtur að því að Alþingi feli sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra að endurskoða þessa ráðstöfun almannafjár við gæðastýringuna í sauðfjárrækt með þetta í huga og með það að markmiði að landnýtingarþáttur hennar samræmist lögum og góðum stjórnsýsluháttum.
Ég lýk máli mínu með því að óska eftir að málinu verði vísað til þinglegrar meðferðar í umhverfis- og samgöngunefnd.