endurskoðun á ráðstöfun almannafjár við gæðastýringu í sauðfjárrækt.
Herra forseti. Þingsályktunartillagan er aðför að bændum, segir hv. þingmaður. Nú kom skýrt fram í máli mínu að þessi tillaga hafði ekki orðið til í tómarúmi. Ég spyr því hv. þingmann hreint út: Er það framlag hv. þingmanns og hans flokks í aðgerðum á sviði loftslagsmála að saka Landgræðsluna, Náttúruverndarsamtök Íslands og Landvernd — auk þeirrar sem hér stendur og þingflokk Viðreisnar í heild — um standa að aðför að bændum með því að benda á það sem miður hefur farið í þessum málum og leggja til að Alþingi og síðan viðeigandi ráðherrar komi fram með tillögur til úrbóta? Er það svo?
Í annan stað langar mig að koma inn á það sem hv. þingmaður nefnir og það er verkefnið GróLind, sem er vissulega gott skref til að styrkja þann grunn sem þarf að styrkja varðandi landnýtingu. Það er hins vegar út í hött að það skuli ekki vera hægt að gera breytingar til bóta á kerfinu fyrr en allar þær upplýsingar liggi fyrir. Þó svo að GróLind muni bæta heilmiklum upplýsingum við um landnýtingu og ástand beitarlands er stóra myndin af núverandi ástandi beitilanda bara nokkuð þekkt og hefur verið síðan rofskýrslan góða kom út árið 1997. Það er vel hægt að hefja strax vinnu við endurskoðun landnýtingarþáttar gæðastýringar eins og hér er verið að leggja til.
Og svo að lokum þetta: Ég tek heils hugar undir það sem kemur fram í máli hv. þingmanns að líklega er engin stétt hér sem hefur meiri hag af því af landnýtingu sé stýrt á bæði góðan og ábyrgan hátt. Engin önnur stétt en bændur. Okkur greinir hins vegar greinilega gríðarlega mikið á um hvernig það verði gert og ég geri ráð fyrir að það kalli á enn frekari umræður hér í þingsal.