endurskoðun á ráðstöfun almannafjár við gæðastýringu í sauðfjárrækt.
Forseti. Ég þakka andsvarið. Ég ætla að höggva aftur í sama knérunn: Aðför er stórt orð. Það var viðhaft í ræðustól af hv. þingmanni og ég bað hv. þingmann um að standa við mál sitt og ég spyr aftur: Eru þeir aðilar, sú sem hér stendur, þingflokkur Viðreisnar, Landgræðslan, Náttúruverndarsamtök Íslands, Landvernd og líklegast fleiri til sem sammála eru um að gera þurfi bragarbót á, að mati hv. þingmanns Framsóknarflokksins að standa fyrir aðför að sauðfjárbændum? Það orð var viðhaft í ræðustól af hv. þingmanni.
Og síðan þetta: Í hvaða heimi lifa þingmenn sem telja að tillögur til úrbóta séu ekki neitt annað en einhver leikur til að gagnrýna eða rífa niður? Þetta eru tillögur til úrbóta á ástandi sem hefur verið ítrekað bent á af fagaðilum að sé ekki í lagi. Þetta eru tillögur til úrbóta. Það getur ekki gengið gegn hagsmunum bænda að benda á það.