150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.

[13:35]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir að taka þetta mál upp. Ég held að það sé gott að ræða það hér vegna þess að það er svo sannarlega aðkallandi og nokkuð sem þarfnast pólitískrar umræðu. Kannski ættum við áður en við förum í þær spurningar sem þingmaðurinn beindi inn í umræðuna að velta fyrir okkur miðað við stöðuna eins og hún er á vinnumarkaði í dag hvort ekki sé allt útlit fyrir að á næstu árum og áratugum, með þeim hröðu breytingum sem eru að verða á atvinnulífinu vegna fjórðu iðnbyltingarinnar, verði sá hópur sérstaklega viðkvæmur fyrir þeim breytingum. Kannski þurfum við að skoða allt kerfið okkar svolítið upp á nýtt þegar það miðar að því að fólk sé að þjálfa sig allt lífið fyrir breytingar. Ég er dálítið hræddur um að akkúrat sá hópur sem við erum að ræða standi veikast gagnvart þeim hröðu breytingum sem eru fyrirsjáanlegar á næstu áratugum.

Þingmaðurinn velti því upp í ræðu sinni hvort atvinnulífið þurfi virkilega ekki á þessu starfsfólki að halda. Sá sem hér stendur er algjörlega sammála, held ég, hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni þegar hann segir að við séum ósammála því að vinnumarkaðurinn þarfnist ekki þessa fólks. Vinnumarkaðurinn þarf að hafa fjölbreytni, við þurfum að tryggja fjölbreytni á vinnumarkaði en það er nú svo með almenna vinnumarkaðinn að við stýrum honum ekki beint. Það eru engir beinir hvatar þegar kemur að ákveðnum hópum á vinnumarkaði, síst þegar kemur að aldri. Það er bara ekki innbyggt í kerfið okkar. Þetta er frjáls vinnumarkaður, þetta eru frjáls fyrirtæki og það eru engir beinir hvatar. Við erum hins vegar að setja inn jafnlaunavottun og annað slíkt þegar kemur að kynjajafnrétti og það má alveg velta fyrir sér hvort við þurfum ekki að skoða til framtíðar ákveðna aðra þætti á vinnumarkaði sem lúta að þeim málum.

Þá spyr þingmaðurinn hvað við sjáum fyrir okkur að hægt sé að gera í málinu. Hið opinbera er með vinnu í gangi í fjármálaráðuneytinu í samstarfi við félagsmálaráðuneytið og forsætisráðuneytið sem lýtur að því að byggja upp fleiri hlutastörf og störf fyrir fólk með skerta starfsgetu innan opinbera kerfisins. Kannski er opinbera kerfið ekkert sveigjanlegra en almenni markaðurinn þegar kemur að þessu og það er það sem við viljum fá umræðu um og það er það sem vinnan í fjármálaráðuneytinu miðar að, að skoða hvernig hægt er að tryggja fjölbreyttari störf hjá hinu opinbera þannig að opinberi markaðurinn geti sýnt gott fordæmi hvað það snertir.

Þingmaðurinn nefndi að Vinnumálastofnun stæði fyrir fjölda námskeiða og fleira fyrir þennan hóp en við erum líka með í gangi vinnu við frumvarp boðað á þessu þingi og þótt það snúi ekki beint að akkúrat þessum hópi lýtur það að breytingum á endurhæfingarkerfinu með innleiðingu virknigreiðslna og endurhæfingargreiðslna. Öll stoðþjónusta sem þarf að byggja upp í kringum það er að hluta til hugsuð til þess að hjálpa fólki að byggja sig upp þegar það fellur út af vinnumarkaði á einhvern hátt og á að geta nýst þeim hópi samhliða.

Virðulegi forseti. Ég held að það sé líka mikilvægt að taka umræðuna um vinnumarkaðinn í heild sinni eins og hv. þingmaður kom inn á. Þegar ég horfi á vinnumarkaðinn hefur mér fundist að samfélagsleg vitund bæði almenna og opinbera vinnumarkaðarins hafi farið dvínandi. Ég man eftir því þegar ég var ungur drengur og fór í fyrirtæki í minni heimabyggð að öllum var tryggð vinna. Það var hlutverk samfélagsins að halda utan um alla borgarana og alla þegnana. Harkan sem er á vinnumarkaðnum og hefur aukist á síðustu áratugum bitnar auðvitað á fólki og kannski á því fólki sem síst skyldi, því sem er komið aðeins yfir miðjan aldur.

Ég held að þær aðgerðir sem við boðum í því efni séu jákvæðar en við þurfum að horfa til framtíðar í þessu efni (Forseti hringir.) og kannski þurfum við að grípa til miklu róttækari aðgerða en við höfum verið að ræða á vettvangi stjórnmálanna hingað til.