atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir að vekja máls á þessu viðfangsefni í þingsalnum. Ég held að hér sé um að ræða málefni sem er þess virði að það sé rætt, bæði hér og annars staðar í þjóðfélaginu. Ég verð hins vegar að játa að ég held að lykillinn að því að bæta stöðuna að þessu leyti sé hugarfarsbreyting frekar en einhverjar aðgerðir. Ég hef ekki trú á valdboði eða einhverjum aðgerðum af því tagi sem fela í sér lagaskyldur eða þess háttar. Ég held að kjarni málsins í þessu sé sá að þeir sem taka ákvarðanir um ráðningar eða hafa með mannaforráð að gera í fyrirtækjum og stofnunum horfi einmitt á þann þátt sem allir ræðumenn sem hér hafa talað hafa nefnt, að í fólki sem komið er á miðjan aldur eða þar yfir býr gríðarleg reynsla sem getur nýst á svo margvíslegum sviðum, auðvitað bæði fagþekking og starfsreynsla, en líka lífsreynsla sem getur nýst á svo mörgum sviðum og í svo mörgum störfum.
Ég held að hugarfarsbreytingin sé kannski lykillinn að því að starfsmannastjórar, framkvæmdastjórar eða forstöðumenn meti af sanngirni þá reynslu sem fólk sem komið er á miðjan aldur eða þar yfir býr yfir og hafi opin augu fyrir þeim möguleikum sem felast í því að fá til liðs við sig fólk með fjölþætta lífsreynslu. Síðan eru aðrir þættir eins og möguleikar á endurmenntun og þess háttar sem þarf að hugleiða líka vegna þess að vinnumarkaðurinn er að breytast þannig (Forseti hringir.) að fólk almennt séð staldrar skemur við í hverju starfi eða á hverjum starfsvettvangi en kannski var algengt áður.