150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.

[13:45]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegur forseti. Eins og aðrir vil ég þakka fyrir þessa umræðu. Hv. 8. þm. Suðurk., Karl Gauti Hjaltason, spurði í opnunarræðu sinni hvort það væru aldursfordómar þegar kæmi að því að ráða fólk í vinnu. Ég tel svarið við því vera tvímælalaust já. Ég heyri það frá öllum yfir fimmtugu, held ég að ég geti fullyrt, sem sækja um vinnu að þau kannist við það sem er stundum kallað kennitölufordómar.

Hv. þingmaður spurði einnig út í það hvort það ætti að setja einhvern aldurskvóta. Ég er almennt ekki hlynntur slíkum kvótum nema þá tímabundið og í tilraunaskyni. Sömuleiðis spurði hv. þingmaður hvort það væri rétt að fella kennitöluna út úr umsóknum og það held ég að eigi að gera. Ég hef tekið eftir því á Íslandi að þegar fólk sækir um vinnu þá fylgir oft mynd með. Þetta þykir ekki endilega fínt í fjölmennari samfélögum þar sem er meiri breidd í útliti fólks eftir uppruna og því um líku. Það þykir ekki fínt að hafa mynd með af ótta við að það hafi óeðlileg áhrif á það hvort viðkomandi sé boðaður í viðtal. Ég sé enga málefnalega ástæðu fyrir því að setja kennitölu í umsóknir ef ég á að segja alveg eins og er. Ég veit ekki hvaða máli hún ætti mögulega að geta skipt nema ef fólk ætli að taka ákvarðanir út frá henni sem ég tel vera bæði óþarfa og siðferðilega vafasamt eða bara rangt. Nema kannski starfið varði beinlínis einhvern tiltekinn aldurshóp, eitthvað því um líkt.

Ég held hins vegar, eins og hv. þm. Birgir Ármannsson, að það sem þurfi fyrst og fremst sé hugarfarsbreyting gagnvart fordómum almennt. Við erum orðin svolítið vön því í nútímasamfélagi okkar að tala opinskátt og mikið um fordóma gagnvart t.d. kvenfólki eða samkynhneigðum eða einhverjum tilteknum hópum. Það sem ég held að þurfi að gerast er að við þurfum að vara okkur á fordómum almennt. Og meðan ég man, fordómar eru ekki eitthvað sem manneskja er eða er ekki, við erum öll fordómafull. Manneskjur eru fordómafullar. Þær verða að vera það vegna þess að þær geta ekki tekið hverja einustu ákvörðun í lífinu út frá öllum vísindalegum gögnum og rökfræði sem á við, þannig að við þurfum að þekkja þetta í okkur sjálfum (Forseti hringir.) og vinna markvisst gegn því, alveg sama af hvaða tegund fordómarnir eru, hvort sem þeir eru gagnvart aldri, kynþætti, trúarbrögðum, kyni eða hverju öðru sem er.