150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.

[13:47]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg):

Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu. Því miður vill það oft vera svo að fólk sem er komið yfir ákveðinn aldur á mjög erfitt með að finna sér starf úti á vinnumarkaðnum. Ég skal ekki segja hverjar ástæðurnar fyrir því eru enda kunna þær að vera af ýmsu tagi. Mér þykir hins vegar rétt að ræða um nokkra þá kosti að efla þátttöku þessa fólks á vinnumarkaðnum. Það er auðvitað fyrst og fremst mannauður í þessum hópi og það er víst að í honum er þekking og lífsreynsla sem getur nýst vinnumarkaðnum vel. Einnig hafa rannsóknir vestan hafs sýnt að eldra fólk helst betur í starfi, jafnvel í greinum með háa starfsmannaveltu eins og í matvöruverslunum og á veitingahúsum, að eldra fólk sé duglegt, hafi oft öflugt tengslanet sem nýtist vel á vinnumarkaði, auk þess sem fátt bendir til þess að það fólk sem ólst ekki upp við tölvur og snjallsíma geti ekki kynnt sér og unnið með nýja tækni.

Fjölbreytileikanum ber að fagna enda er hann mikill styrkleiki og úti á vinnumarkaðnum vill það oft vera þannig að vinnustöðum með starfsmenn sem hafa fjölbreytta þekkingu, reynslu og menntun vegnar best. Rannsóknir á vinnumarkaði gefa þessari ályktun undir fótinn enda hafa þær bent til þess að oft og tíðum eru bestu og mest skapandi vinnuteymin þau sem innihalda alla aldurshópa.

Einmanaleikavinkillinn er ekki síður mikilvægur í þessu. Einmanaleiki hjá eldra fólki getur haft alvarlegar heilsufarslegar afleiðingar og virðist því miður vera að aukast meðal eldra fólks hérlendis. Vinnustaður er nefnilega ekki einungis vettvangur þar sem sköpuð eru verðmæti. Vinnustaðir hafa líka mikið félagslegt gildi og spila stóran þátt í félagslífi margra. Það að stuðla að því að eldra fólk komist inn á vinnumarkaðinn getur þess vegna ekki einungis haft fyrst og fremst jákvæð áhrif á einstaklinginn sem fær að nýta krafta sína, reynslu og þekkingu og taka þátt í félagslífi heldur gæti það að auki haft töluverð jákvæð samfélagsleg áhrif. Heilbrigðiskerfið getur sparað nokkurt fé enda þyrfti það í minna mæli að fást við heilsukvilla tengda einmanaleika.

Þegar hægt er að nýta þekkingu og reynslu þessa hóps verður verðmætasköpun í samfélaginu meiri og yngri kynslóðir geta grætt heilmikið þegar þær eldri miðla þekkingu sinni og reynslu til þeirra, (Forseti hringir.) alveg líkt og þekking unga fólksins getur verið dýrmæt fyrir það eldra.