atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.
Virðulegi forseti. Það er búið að tala lengi um að auka sveigjanleika á vinnumarkaði en nú er kominn tími til að við breytum orðum í athafnir og förum í þær framkvæmdir. Við þurfum að tryggja að reynslan verði nýtt af því að það er í þágu einstaklinganna sem um ræðir en líka í þágu alls samfélagsins, verðmætasköpunar o.fl. Mannauðurinn er alveg ótrúlegur á öllum aldursbilum og við eigum að tryggja að fólk hafi valfrelsi um það hvenær það hættir að vinna og hvernig það stendur að því. Við eigum ekki að standa í því að hrekja fólk af vinnumarkaði eins og kerfið er byggt upp núna. Þó að það sé velvild bæði innan þessa þingsalar og úti á vinnumarkaðnum að vissu leyti í að koma til móts við hugmyndina hefur ekki verið gert nægilega mikið í áraraðir. Við í Viðreisn viljum tryggja að fólk hafi valfrelsi á öllum aldursstigum.
Við skulum líka hafa það hugfast að frá árinu 2008 hafa 30.000 ný störf skapast. Það eru núll í nýsköpunar- og þekkingargreinum. Auðvitað hefur það áhrif á það að við getum boðið upp á nægilega fjölbreytt störf á vinnumarkaði þannig að hann rúmi alla. Við verðum að fara að búa í haginn, m.a. þannig að við getum tekist á við fjórðu iðnbyltinguna með því að hafa fjölbreytni í störfum. Það nýtist líka í því að við getum opnað vinnumarkaðinn enn frekar fyrir eldra fólki.
Síðan er annað sem ég vildi benda á, af því að ég er búin að vera nokkuð lengi á þingi, að af þingmönnum eldri en 60 ára eru 14 karlmenn og þrjár konur. Ég sakna sérstaklega kvenna í þingsalnum sem ég hef unnið með í ólíkum flokkum í gegnum tíðina, kvenna sem hafa mikla reynslu og mikla þekkingu þvert á flokka. Mér finnst alltaf vont að sjá þær fremur en karlana fara út af þingi, taka pokann sinn í staðinn fyrir að vera hér áfram af því að þær eru svo margar sem hafa átt og eiga enn erindi á þingi og ég sakna þeirra einlæglega. (Forseti hringir.) Ég held að stjórnmálaflokkarnir verði líka að hugsa sinn gang þegar kemur að niðurröðun á framboðslista.