150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.

[13:59]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég vil eins og aðrir þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir að vekja athygli á þessu máli. Ég verð samt að viðurkenna að fyrst þegar ég las titilinn, atvinnuþátttaka 50 ára og eldri, hélt ég að við værum eitthvað að grínast. Ég hélt að við værum meira að hugsa um eldra fólk og í ljósi þess að orðabók skilgreinir núna á miðjum aldri að vera 45–60 ára og lífaldur okkar er alltaf að lengjast er svolítið skuggalegt og skrýtið til þess að hugsa að á sama tíma séum við enn að glíma við einhvers konar aldurssmánun og það sé í rauninni byrjað á miðjum aldri. Það er eiginlega alveg ótrúlegt.

Aðrir þingmenn hafa margir hverjir bent á að lausnin á því hljóti að vera hugarfarsbreyting. Ég held að það sé alveg ljóst að vinnumarkaðurinn þarf að vera enn sveigjanlegri. Það er sorglegt til þess að hugsa að við höfum misst öll hlutastörf út af íslenskum vinnumarkaði. Ég var ánægð að heyra það hjá hæstv. ráðherra að markvisst væri unnið að því, alla vega í Stjórnarráðinu, að koma slíku á. Það hefur hins vegar ekkert með það að gera að fullfrískt fólk um fimmtugt eigi erfitt með að finna sér atvinnu og ég velti fyrir mér hverju sæti í þeim efnum og hvort tölur kunni að vera einhvers staðar annars staðar erlendis.

Hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir benti á aldurspíramídann sem við erum með á þingi. Hann er svolítið skuggalegur þegar kemur að því að hér eru örfáar konur eldri en 60 ára en við erum með töluvert af karlmönnum. Við höfum misst töluvert af konum á síðustu áratugum og þar erum við augljóslega að missa þekkingu. Ég velti því fyrir mér þegar maður sér svo forsetaframbjóðendur í Bandaríkjunum sem eru eiginlega allir komnir vel á síðari hluta starfsævinnar.

Ég ítreka þakkir mínar fyrir að taka þetta mál upp. (Forseti hringir.) Það skiptir máli. Ég held að við séum að hugsa um hugarfarsbreytingu, fjölbreytileika og sveigjanleika á íslenskum vinnumarkaði. Það hlýtur að vera lausnin.