150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.

[14:02]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Eftir því sem ég fæ séð er tvennt í þessu sem aðrir þingmenn hafa líka nefnt. Annars vegar er hugarfarsbreyting. Ég held að hún þurfi að koma til bæði hjá vinnuveitendum og umsækjendum vegna þess að það er munur milli kynslóða á því hvernig þær sjá fyrir sér að maður eigi að fara að því að sækja um vinnu.

Ég á mörg undarleg áhugamál, eins og konan mín gæti sagt okkur, en eitt af þeim er að hjálpa öðru fólki að sækja um vinnu. Það er sérlegt áhugamál, ég tek frá tíma til að hjálpa fólki sem ég þekki ekkert endilega það mikið, og ég tek eftir því sama aftur og aftur, fólk miklar þetta fyrir sér og sækir oft um á einum stað í einu, hugsanlega tveimur stöðum í einu. Mín speki er sú að maður sæki um tíu störf á dag þangað til maður er kominn með vinnu. Það er lágmark hjá mér, ég myndi segja 20, en ég veit að fólk gerir það almennt ekki. Það er almennt ekki með alveg það mikinn þrótt. Það tekur á að fá mörg nei og sér í lagi að fá engin svör sem er dæmigert, ekki einungis fyrir fólk á miðjum aldri. Það er bara frekar dæmigert að fá ekki svar við umsókn um vinnu, því miður.

Burt séð frá hugarfarsbreytingunum sem þurfa að eiga sér stað í samfélaginu eru ákveðnir hlutir sem við gætum gert til að auðvelda öllum bæði að fá vinnu og búa til vinnu, t.d. að straumlínulaga regluverk í kringum sjálfstæðan atvinnurekstur. Fólk um fimmtugt er oft komið með gríðarlega reynslu sem það getur alveg nýtt í sjálfstæðan atvinnurekstur en miklar það kannski fyrir sér að hluta til vegna þess að regluverkið, þótt það sé ekkert ægilega flókið — annað sem ég þekki líka af persónulegri reynslu — er samt nógu flókið til að einstaklingur sem ekki hefur áhuga á því getur auðveldlega miklað það fyrir sér.

Mér finnst að við ættum að skoða að nýta nútímatækni miklu meira til að gera það mjög einfalt fyrir einstakling í hvaða iðnaði sem er, sem kemur tölvum og skriffinnsku ekkert við, að hefja sjálfstæðan rekstur, standa rétt skil á öllum skuldbindingum sínum og nýta öll þau tækifæri sem því geta fylgt. Þegar maður er sinn eigin yfirmaður fylgir því mikið frelsi (Forseti hringir.) sem ég held að sé eftirsóknarvert, reyndar á hvaða aldri sem er en kannski sér í lagi um miðjan aldur.