150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.

[14:06]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Ég fagna þessari umræðu og held að hún sé mjög mikilvæg og löngu tímabær. Út frá reynslu minni á vinnumarkaði held ég að það þurfi að eiga sér stað hugarfarsbreyting. Vinnumarkaðurinn er í ráðningum langt á eftir í þeirri þróun sem hefur orðið. Fólk vinnur ekki lengur 30–40 ár á sama vinnustað. Meðalstarfstími er kannski fimm til sjö ár og það er bara mjög góður árangur fyrir vinnuveitanda ef starfsmaður helst í starfi í fimm til sjö ár. Þess vegna er t.d. hugsunin að ekki sé hægt að ráða einstakling yfir 60 ára aldri af því að það sé svo stutt í eftirlaun alveg fjarstæðukennd í því samhengi. Það er bara frábært að fá einstakling með svo mikla reynslu og geta haldið honum í fimm til sjö ár, þ.e. þar til hann lýkur starfsævi sinni. Þess vegna held ég að við séum að vanmeta allt of mikið reynsluþáttinn. Þetta er gegnumgangandi vandamál í ráðningarferli, bæði hjá hinu opinbera og hjá einkafyrirtækjum, það er enn þá allt of mikið einblínt á menntaþátt viðkomandi umsækjanda en reynsluþættinum gefið allt of lítið vægi. Ég myndi horfa til þess hvað hið opinbera gæti gert í þeim efnum, t.d. hvernig er auglýst, hvaða kröfur eru gerðar þegar auglýst er í ný störf. Af hverju erum við alltaf að krefjast meistaragráðu þegar við vitum alveg að í því liggur kerfisbundin aldursmismunun? Meistaragráða var miklu óalgengari fyrir aldurshópinn 50–70 ára í dag en er hjá nýútskrifuðum nemendum. Þar af leiðandi erum við kerfisbundið að vanmeta hjá hinu opinbera reynsluþátt umsækjenda og alls ekki að gefa þeim tækifæri til að leggja að jöfnu. Hvers virði er 30 ára starfsreynsla? Hvað liggja margar eiginlegar meistaragráður í allri þeirri reynslu sem þar er uppsöfnuð?

Þarna gæti hið opinbera tekið til í sínum eigin ranni (Forseti hringir.) með því að festa sig ekki í rúðustrikaðar mennta- eða hæfiskröfur í auglýsingum.