atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir innlegg hans og öllum þeim þingmönnum sem tóku til máls undir þessari umræðu og bentu á ýmis atriði sem vert er að huga betur að og gaman var að heyra. Ég tók eftir því að hæstv. ráðherra og einhverjir aðrir ræddu fjórðu iðnbyltinguna og það að störfin væru orðin flóknari og erfiðari sem væri kannski hluti af vandamálinu. Ég tek undir það, þetta kallar á aukna þjálfun og menntun og að gefa þessu fólki tækifæri til að sækja sér það og ýta þar eitthvað undir, að sjálfsögðu.
Þetta er svo skammur tími að ég ætla að fara beint í það sem ég vil aðallega segja þótt það sé margt sem ég gæti minnst í sambandi við það sem þingmennirnir komu inn á. Ég spyr t.d. hvort verkalýðshreyfingin ætti ekki að taka á þessu máli fyrir umbjóðendur sína og leitast við að leiðrétta og tæpa á þeim vandamálum sem við höfum verið að ræða í dag.
Afleiðingarnar af þessu vandamáli eru nokkuð sem ég vil nefna. Eins og sumir sögðu veldur þetta kvíða, þunglyndi, vanlíðan o.s.frv. sem endar oft á örorku, líkt og hv. þm. Sigurður Páll Jónsson nefndi. Þær tölur eru samt ekki í þeim slæmu tölum sem við erum með fyrir framan okkur. Þær tölur eru ekki hér inni þannig að vandamálið er kannski falið enn meira en við gerum okkur grein fyrir.
Síðan spyr ég um þátt kvenna sem ég held að fáir hafi minnst á. Það er mikill skortur í mörgum stórum kvennastéttum á starfsfólki, kennurum og umönnunarstörfum, en samt mælast konur hátt (Forseti hringir.) í langtímaatvinnuleysi í þessum aldursflokki. Vandamálið er jafnvel enn verra meðal hinna ófaglærðu á sömu sviðum.