150. löggjafarþing — 11. fundur,  26. sept. 2019.

atvinnuþátttaka 50 ára og eldri.

[14:11]
Horfa

félags- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegur forseti. Ég vil, líkt og hv. þingmaður sem hóf þessa umræðu, þakka fyrir umræðuna sem hefur farið fram og segja að ég held að niðurstaða hennar sé svolítið sú að það sé ekki einhver ein heildarlausn sem leysi vandann sem við er að glíma. Það þarf hugarfarsbreytingu á vinnumarkaðnum eins og margir hafa bent á, hugsanlega þarf að setja einhverja hvata inn á vinnumarkaðinn til að hvetja til þess að bregðast við. Ég nefndi í ræðu að við þyrftum að skoða það.

Við þurfum líka að aðstoða fólk við það að vera sífellt að aðlaga sig að nýjum aðstæðum, fólk sem er á vinnumarkaði og er að detta út af honum. Ein hugmynd í því efni sem ég hef heyrt er að fólki verði ekki boðið upp á í samstarfi við atvinnurekanda að sækja einhver ákveðin námskeið heldur sé það skyldað til að taka ákveðin námskeið eða bæta við sig meðan á vinnu stendur og það sé ekkert bundið við þann vinnuveitanda sem viðkomandi vinnur hjá, þannig að hann hafi ákveðnar skyldur til að vera alltaf að bæta við sig og til þess að halda sér við sem einstaklingi í vinnu.

Líkt og bent hefur verið á í umræðunni erum við að fara að sjá þannig breytingar á vinnumarkaði, ekki bara hér á landi heldur um allan heim, að þær munu kalla á að fólk verði sveigjanlegra og við þurfum að aðstoða fólk við að vera það, að fólk geti verið tilbúið til að skipta jafnvel um starfsvettvang mjög oft á starfsævinni. Það er sérstaklega erfitt fyrir þá sem eru ekki vanir því og eru komnir yfir fimmtugt í dag. Við þurfum einkum að ná utan um þann hóp. Ég er sammála því að ríkið geti farið fram með góðu fordæmi. Ríkisstjórnin undir forystu fjármálaráðuneytisins er að undirbúa aðgerðir hvað varðar hlutastörf og störf handa fólki með skerta starfsgetu og er mikilvægt að það geti nýst þessum aldurshópi.

Að öðru leyti þakka ég hv. þingmanni fyrir umræðuna. (Forseti hringir.) Hún var góð, gagnleg og málefnaleg að mínu mati.