mótun klasastefnu.
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um mótun klasastefnu og er málið að finna á þskj. 121, málsnúmer 121. Ég hef flutt þetta mál nokkrum sinnum áður, fyrst á 144. löggjafarþingi árið 2014 og eiginlega á flestum þingum síðan þá; 145., 146., 149. og nú á 150. löggjafarþingi.
Tillögugreinin hljóðar svo:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að skipa starfshóp sem fái það hlutverk að móta opinbera klasastefnu. Stefnan feli í sér fyrirkomulag um hvernig hið opinbera efli stoðkerfi atvinnulífsins á landsvísu í samvinnu við atvinnulífið, rannsóknar- og menntastofnanir, sveitarfélögin og aðra hagsmunaaðila sem málið snertir. Stefnan verði unnin í tengslum við stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs 2017–2019. Markmið nýrrar klasastefnu verði:
a. að ráðstafa fjármunum til atvinnuuppbyggingar og byggðaþróunar með markvissum hætti,
b. að efla samvinnu vísinda og atvinnulífs,
c. að efla nýsköpun,
d. að efla samkeppnishæfni fyrirtækja, atvinnugreina og þjóðarinnar,
e. að efla hagsæld.
Ríkisstjórnin skili skýrslu til Alþingis með niðurstöðum starfshóps í lok maí 2020.“
Virðulegi forseti. Ég vil í upphafi ræðu minnar nefna tvennt er varðar tillögugreinina og biðla um leið til hv. atvinnuveganefndar að skoða sérstaklega. Annars vegar tel ég að það væri mjög til bóta að sækja þekkingu á klasastefnu og klasastarfi erlendis frá og sækja þá reynslu sem er til staðar víða erlendis þar sem unnið er eftir opinberri stefnu. Ég kem m.a. inn á það í ræðu minni og er í greinargerð með málinu að jafnframt sé ráðgert að við vinnuna verði litið m.a. til reynslu Dana, Norðmanna og þeirra þjóða sem lengst eru komnar í mótun opinberrar klasastefnu.
Hins vegar vil ég nefna að hér er lagt til og ályktað að fela ríkisstjórninni að skipa slíkan starfshóp, að verkefnið eigi heima hjá hæstv. iðnaðar-, nýsköpunar- og ferðamálaráðherra sem einmitt hefur nýverið lagt lokahönd á nýsköpunarstefnu. Ég hef ekki fengið kynningu á henni en ég reikna með að hún verði birt opinberlega alveg á næstunni. Ég er þeirrar skoðunar þegar við ræðum nýsköpun og nýsköpunarstefnu að opinber klasastefna ætti að vera hluti slíkrar heildarstefnumótunar. Það er líka fyllilega í samræmi við stjórnarsáttmála og stefnuyfirlýsingu hæstv. ríkisstjórnar að móta slíka stefnu, opinbera klasastefnu, og í yfirlýsingunni er lögð áhersla á að hvetja til hvers konar nýsköpunar og segir þar orðrétt, með leyfi forseta:
„Sett verður af stað vinna við að undirbúa klasastefnu fyrir Ísland þar sem unnið er með styrkleika ólíkra atvinnugreina í samvinnu menntakerfis, rannsóknastofnana, atvinnulífs, sveitarfélaga og annarra hagsmunaaðila.“
Það segir svo í greinargerð með þingsályktunartillögunni að lagt sé til að slík opinber klasastefna verði mótuð í tengslum við stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs. Ég vil í því samhengi vitna í fyrstu umsögn við málið sem kom fram árið 2014 en sú umsögn kom frá Bændasamtökunum. Í henni var einmitt lögð áhersla á þessa tengingu við aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs, enda er mjög margt að finna í þeirri aðgerðaáætlun sem hefur samhljóm með hugmyndafræði klasastefnu. Í umsögninni segir m.a., með leyfi forseta:
„Samtökin styðja tillöguna og leggja til að hún verði samþykkt. Það er jákvætt að stjórnvöld nýti sér kosti klasahugmyndafræðinnar til að efla og styrkja stoðkerfi atvinnulífsins og efla nýsköpun. Mörg dæmi, bæði hér heima og erlendis, eru um góðan árangur af klasasamstarfi og má nefna Sjávarklasann sem dæmi.
Bændasamtökin vilja þó leggja áherslu á að stefnumótun sem þessi sé samræmd annarri stefnumótun stjórnvalda á sama sviði, þ.e. áætlun Vísinda- og tækniráðs eins og fram kemur í tillögunni, en einnig byggðaáætlun, sóknaráætlunum landshluta og öðrum þeim áherslum sem taka til þeirra verkefna sem tillagan fjallar um.“
Mér finnst þetta mjög góð athugasemd vegna þess að í tillögugreininni kemur fram að við ráðstöfum fjármunum markvissar. Nú erum við að gera mjög margt til að stuðla að byggð í landinu, efla atvinnu á svæðum um allt land og það sem klasastefnan gerir er að tengja betur saman menntastofnanir og rannsóknir og hvetja okkur til þess að skilgreina frekar þá framleiðsluþætti sem við höfum á hverju svæði fyrir sig og þá möguleika sem eru til staðar. Þar með getum við nýtt á markvissari hátt fjármunina sem við ráðstöfum í þeim tilgangi. Ég er hjartanlega sammála því sem fram kemur í þessari umsögn og held að þegar hv. atvinnuveganefnd tekur málið til umfjöllunar ætti hún að fjalla um þennan þátt. Ég er ekki í vafa um að starfshópur með þekkingu og bakgrunn í slíkri stefnumótun mun fara yfir þetta. Það eru gífurleg tækifæri í því fólgin fyrir stjórnvöld til að auka skilvirkni í ráðstöfun fjármuna og vinna markvissar alla byggðastefnu, atvinnuuppbyggingu og byggðaþróun.
Hugmyndafræðin um klasa er alls ekki ný og má rekja sögulega aftur til kenninga Michaels Porters. Hún er auðvitað þekkt hér á landi og Nýsköpunarmiðstöð Íslands er leiðandi stofnun á sviði rannsókna- og þróunarstarfs á því sviði og auk þess að standa að mjög fróðlegu árlegu riti um klasa hefur Nýsköpunarmiðstöðin gefið út leiðbeiningarhandbók um klasastjórnun sem er í tilvísunargrein með tillögunni. Þar er jafnframt að finna skilgreiningu á hugmyndafræðinni þar sem segir að klasi sé „landfræðileg þyrping tengdra fyrirtækja, birgja, þjónustuaðila, fyrirtækja í tengdum atvinnugreinum og stofnana á sérhæfðum sviðum sem eiga í samkeppni og einnig í samvinnu“. Þegar ég les þá skilgreiningu dettur mér þegar í hug jarðvarmaklasinn. Við höfum náð gríðarlegum árangri með samvinnu ólíkra aðila á ólíkum sviðum. Sprottið hafa upp nýjar hugmyndir og klasinn hefur jafnframt, sem ekki allir klasar þurfa eða hafa endilega, alþjóðlega tengingu. Það er ekki bara að nýsköpunin nýtist innan lands heldur getur það skapað nýjar hugmyndir, nýja tækni, nýja hugsun sem hefur alþjóðlega skírskotun og mun efla þess vegna, eins og kemur fram í tillögugreininni, samkeppnishæfni þjóðarinnar.
Það hafa litið dagsins ljós ýmis góð klasatengd verkefni, eins og jarðvarmaklasinn, bæði að frumkvæði hins opinbera og atvinnulífsins þar sem sjálfsprottnir klasar á borð við sjávarklasann og ferðaklasann hafa náð góðum árangri og sannað gildi sitt. Ég hef skilning á þeirri gagnrýni sem hefur komið fram um að þegar hið opinbera eða stjórnvöld fari að beita sér fyrir stefnumótun geti það á einhvern hátt hamlað uppbyggingu sjálfsprottinna klasa. Það er alls ekki meiningin og ekki reynslan erlendis frá, þvert á móti á að efla stuðning við slíka klasa. Áherslan er alltaf á samvinnu og að byggja brú á milli rannsóknastarfs og þeirra klasa sem um ræðir. Við ættum í raun í slíkri stefnu að leggja áherslu á samvinnuna milli rannsóknastarfs og þeirra klasa sem þegar hafa náð fótfestu og byggja undir nýja klasa, nýta þá þekkingu og þann grunn sem þar hefur áunnist. Það er vel að það skuli hafa byggst upp reynsla hér.
Þegar málið var lagt fram komu tvær umsagnir við málið, annars vegar frá Bændasamtökunum, sem ég kom inn á, og svo frá Viðskiptaráði Íslands en hún var einnig mjög jákvæð í garð tillögunnar og Viðskiptaráð studdi markmið tillögunnar á þeim tíma, 2014. Þar segir, með leyfi forseta:
„Reynsla annarra þjóða hefur sýnt að ávinningur klasasamstarfs á borð við það sem þingsályktunartillagan kveður á um getur verið umtalsverður. Að mati Viðskiptaráðs skiptir útfærsla klasastefnunnar miklu máli en lykilatriði er að framkvæmd slíkrar stefnu sé að sem mestu leyti á höndum atvinnulífsins sjálfs. Eins þarf hlutverk opinberra aðila að vera vel afmarkað og takmarkast við setningu lagaramma og eftirfylgni.
Loks leggur Viðskiptaráð áherslu á að aðhalds verði gætt í tengslum við útgjöld hins opinbera vegna ofangreindrar stefnumótunar.“
Það má taka undir allt þetta, virðulegi forseti. Eins og ég sagði þá snýst klasastefna ekki síst um að móta og efla umgjörðina og byggja brú á milli mennta- og rannsóknastofnana, opinberra stofnana og atvinnulífsins. Það á heldur ekki að þurfa að kalla á mikla viðbótarfjármuni heldur á fyrst og fremst að nýta þá sem fyrir eru og fara í nýsköpun og eru í kerfinu, m.a. til byggðamála og atvinnuuppbyggingar, nýta þá fjármuni markvissar og á skilvirkari hátt. Reynslan erlendis frá hefur sýnt að slík samvinna nýtist sérstaklega vel minni og meðalstórum fyrirtækjum. Það hljómar afar vel í okkar eyru.
Talandi um reynslu erlendis frá þá fengum við þingmenn tækifæri á að eiga samtal við og hitta Ifor Williams sem er mikill sérfræðingur á þessu sviði frá Nýja-Sjálandi, fyrir milligöngu Nýsköpunarmiðstöðvar, og um Ísland hafði hann það að segja að við hefðum tekið seint við okkur í þessum málum. Nokkrir klasar hafi verið stofnaðir og séu í bígerð með stopulan aðgang að fjármagni en mjög lítil þátttaka stjórnvalda hingað til. Hann taldi mikil tækifæri vera til staðar og ég hafði m.a. tækifæri til að spyrja hann út í þetta og hann taldi að það væri einmitt afar mikilvægt að stjórnvöld, hið opinbera, hefðu eins og víðast hvar forgöngu um slíka stefnumótun. Það skortir stefnumótunarþáttinn.
Í tímans rás, þegar við höfum lagt málið fram, ég og meðflutningsmenn, hefur það farið lengra í umfjöllun nefndar og síðast bárust sjö umsagnir við málið. Þær voru allar jákvæðar og væri einnar messu virði að vísa í þær umsagnir vegna þess að af þeim má margt læra. En tíminn er auðvitað hlaupinn frá manni eins og gjarnan er.
Ég vil í lokin, virðulegur forseti, segja að ég vona að málið fái áfram þá jákvæðu umfjöllun sem það hefur fengið hingað til, ég á ekki von á öðru, en jafnframt að það fái frekari framgang í umfjöllun hv. nefndar og það hlýtur að vera hvatning í því fyrir hæstv. ríkisstjórn og hæstv. iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að Alþingi sé á bak við slíka tillögu.
Ég er líka mjög ánægður og þakklátur með þá staðreynd að allir flokkar styðja málið og finnst að Alþingi eigi að geta stutt slíkt mál þegar svo er raunin. Flutningsmenn ásamt mér koma úr öllum þeim flokkum sem sæti eiga á Alþingi en þeir eru eftirtaldir hv. þingmenn: Sá er hér stendur, Willum Þór Þórsson, Albertína Friðbjörg Elíasdóttir, Anna Kolbrún Árnadóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Ásmundur Friðriksson, Bergþór Ólason, Birgir Þórarinsson, Björn Leví Gunnarsson, Bryndís Haraldsdóttir, Guðjón S. Brjánsson, Gunnar Bragi Sveinsson, Halla Signý Kristjánsdóttir, Inga Sæland, Karl Gauti Hjaltason, Líneik Anna Sævarsdóttir, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigurður Páll Jónsson, Þorsteinn Sæmundsson, Þorsteinn Víglundsson og Þórarinn Ingi Pétursson.