mótun klasastefnu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Willum Þór Þórssyni fyrir framlagningu þessarar tillögu. Hún hefur komið fram allt of oft og nú þurfum við bara að klára hana svo ekki þurfi að leggja hana fram enn á ný. Hér er um mikilvægt mál að ræða og ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Hann fór býsna vel yfir þá staðreynd að klasasamstarf er í auknum mæli nýtt í nýsköpun og atvinnuuppbyggingu til að tryggja samkeppnishæfni, bæði svæða en ekki síður þjóða. Þar þurfum við einfaldlega alltaf að vera á tánum. Þó að samkeppnishæfni okkar sé að sumu leyti mjög góð erum við slakari þegar kemur að öðrum þáttum. Ég er sannfærð um að þetta geti verið tól sem nýtist í að efla enn frekar samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs.
Hér hefur ekki verið mótuð nein opinber stefna og hv. þingmaður kom inn á að sumir kunni að hafa áhyggjur af því að það að móta opinbera stefnu sé ekki alveg rétta málið þegar kemur að atvinnumálum og kannski sé betra að þetta sé sjálfsprottið. Við höfum allnokkra sjálfsprottna klasa, við höfum álklasa og ferðaþjónustuklasa en sjávarútvegsklasinn er besta dæmið og kannski orðinn þekktastur. Þeir eru fleiri en ég get ekki betur séð einmitt en að tekið sé heils hugar undir mikilvægi þess að mörkuð sé opinber stefna um þessa ágætu klasa. Ég sá í umsögn frá álklasanum að þau telja stefnumörkun stjórnvalda gríðarlega mikilvæga. Og svo þurfa aðgerðir að fylgja í kjölfarið.
Ég kom aðallega hingað upp til að ítreka mikilvægi þessa. Eins og hv. þingmaður fór yfir á mettíma í lokin er ég meðal býsna margra flutningsmanna þannig að ég styð málið og líka er ástæða til að benda á að talað er um þetta í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar.
Hv. þingmaður kom aðeins inn á það líka að við væntum þess að fá nýsköpunarstefnu mjög fljótlega og ég held að þetta vinni allt mjög vel saman. Það er mikilvægt að íslenskt rannsókna- og vísindastarf sé meðvitað um þarfir atvinnulífsins og að gott samtal og góður samhljómur sé milli akademíska umhverfisins og atvinnulífsins þótt ég viðurkenni algjörlega mikilvægi akademísks frelsis. Nýsköpunin og aukin hagsæld verður svolítið til í því að þessir aðilar vinni saman, finni nýjar lausnir og auki verðmætasköpunina hér á landi.
Ég styð þetta mál eins og fram hefur komið og vona að ég þurfi ekki að fara oftar í pontu Alþingis til að mæla því bót vegna þess að við klárum málið á þessu þingi.